Umsækjendur eru eftirfarandi, í stafrófsröð:
- Einar Örn Thorlacius, lögfræðingur
- Guðmundur Magnússon, framkvæmdarstjóri
- Hildigunnur Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri
- Jón Magnús Kristjánsson, framkvæmdastjóri
- Kristinn v Blöndal, ráðgjafi
- Linda Rut Benediktsdóttir, sviðsstjóri
- Suren Kanayan, læknir
Þriggja manna hæfnisnefnd, sem starfar á grundvelli 9. gr. laga um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, mun nú meta hæfni umsækjanda en starfsreglur nefndarinnar má finna hér.
Heilbrigðisráðherra skipar í stöðu forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri til 5 ára frá 1. september 2021.
Bjarni Smári Jónasson, starfandi forstjóri, tilkynnti samstarfsfólki í júní að hann ætlaði að láta af störfum og fara að njóta þess skemmtilega kafla ævinnar sem nefndur hefur verið þriðja æviskeiðið.