„Ég er ekki að skrifa þetta sem prinsinn sem ég var þegar ég fæddist, heldur sem maðurinn sem ég er orðinn í dag,“ segir Harry í tilkynningu sinni.
Í lýsingu á bókinni segir að hún muni innihalda reynslusögur, ævintýri, sorg og lexíur. Farið verður yfir æskuárin, fullorðinsárin og allt þar á milli, svo sem lífið innan veggja hallarinnar, árin í hernum og lífið sem eiginmaður og faðir.
Samkvæmt heimildarmanni Us Weekly er konungsfjölskyldan á nálum yfir væntanlegri ævisögu Harrys og eru Bretaprinsarnir Karl og Vilhjálmur taldir vera sérstaklega stressaðir.

Síðan Harry og eiginkona hans Meghan Markle komu fram í einlægu viðtali hjá spjallþáttadrottningunni Opruh Winfrey fyrr á árinu, hefur prinsinn ekki veigrað sér við að tala hreinskilnislega um konungsfjölskylduna.
Þar deildu hjónin því meðal annars að breska konungsfjölskyldan hafi skapað svo rasískt andrúmsloft að Meghan hafi á tímabili verið í sjálfsvígshugleiðingum.
Því kann konungsfjölskyldan að óttast hvaða leyndarmál koma upp á yfirborðið næst.
Að sögn heimildarmanns hefur konungsfjölskyldan ekki fengið að lesa yfir neitt sem mun birtast í bókinni og veit því ekki hvers er að vænta.

Útgáfufyrirtækið Penguin Random House mun gefa ævisöguna út og mun allur hagnaður af bókinni renna til góðgerðamála.
„Harry prins hefur tekið saman ótrúlega lífsreynslu sína sem prins, hermaður og talsmaður hinna ýmsu félagsmála. Hann hefur skipað sér sess sem heimsleiðtogi, þekktur fyrir hugrekki og hreinskilni. Þess vegna erum við full tilhlökkun að gefa út heiðarlega og áhrifaríka sögu hans,“ segir Markus Dohle, forstjóri útgáfufyrirtækisins.
Prinsinn kveðst vera einstaklega þakklátur fyrir það að fá tækifæri til þess að deila því sem hann hefur lært í gegnum tíðina og segist hann hlakka til þess að fólk heyri sannleikann frá fyrstu hendi.
„Ég vona að með því að segja mína sögu, sjái fólk að sama hvaðan við komum, eigum við meira sameiginlegt en fólk heldur.“