Myndband sem Sigmundur Davíð birti í hringrás á Instagram hefur farið eins og eldur í sinu um internetið. Í myndbandinu sést Sigmundur borða hrátt nautahakk beint upp úr kassanum.
Bráðahungur bankaði upp á
Sigmundur segir í samtali við fréttastofu að hann hafi verið á ferðalagi um Berufjörð í gær og hafi skyndilega orðið glorsoltinn. Þá brá hann á það ráð að bregða sér inn í verslun á Djúpavogi og kaupa sér eitthvað í gogginn.
Hann segir að það sem honum hafi fundist girnilegast hafi verið kassi af íslensku nautahakki. Hann keypti kassann og segir hakkið hafa verið mjög gott.
Það var ekkert síðra svona beint úr boxinu.
Sigmundur segist vera í megrun þessa dagana og að hún gangi nokkuð vel. Hann segir þó að erfitt sé að huga að heilsusamlegu matarræði þegar hann er á ferðalögum. Hann er einmitt á ferðalagi um Austfirði um þessar mundir og sér fram á að ferðast mikið á næstu vikum í aðdraganda kosninga.
Þegar fréttastofa náði tali af Sigmundi hafði hann nýlega ákveðið að kaupa sér poka af íslenskum radísum en að hans sögn er „grænmetisdagur í dag.“
Myndi ekki borða erlent kjöt
„Ég hefði aldrei borðað þetta hrátt eða yfir höfuð ef þetta væri erlent kjöt,“ segir Sigmundur. Hann hefur áður talað um yfirburði íslensks kjöts yfir erlent og auglýst dálæti sitt á hráu íslensku kjöti. Síðast þegar hann gerði það sendi Matvælastofnun frá sér aðvörun við neyslu á hráu kjöti.
Sigmundur segist gefa lítið fyrir aðvörun Matvælastofnunar og bendir á að neysla hrás kjöts tíðkist víða í heiminum. Þó segir hann að mikilvægt sé að passa að kjöt, sem neyta á hrás, sé nýtt, ferskt og síðast en ekki síst, íslenskt.
„Ég borða til dæmis aldrei boeuf tartare þegar ég er í Frakklandi,“ segir Sigmundur.
Netverjar hafa ýmist lýst yfir furðu sinni eða gert stólpagrín að forsætisráðherranum fyrrverandi eftir birtingu myndbandsins sem sjá má hér að neðan ásamt viðbrögðum við því.
Við sjáum myndband: pic.twitter.com/y7U1nfA6rH
— Haukur Viðar (@hvalfredsson) August 5, 2021
Sigmundur Davíð, this u? pic.twitter.com/p21mydqVX1
— Sonja Margrét (@tussukusk) August 6, 2021
Ég er farinn að halda að Sigmundur Davíð sé virkilega vel heppnaður gjörningur frá Snorra Ásmundssyni
— Þossi (@thossmeister) August 5, 2021
Sigmundur Davíð, fylgið er frosið, okkur vantar eitthvað til að ná athygli.
— Halldór Auðar Svansson (@tharfagreinir) August 6, 2021
Engar áhyggjur, ég er að fara að draga fram leynivopnið ... að éta hrátt kjöt.
En þú hefur gert það áður.
Jújú ... en ég hef aldrei skóflað því í mig með berum höndum.
Snilld, kýlum á það.