Exotic gerði garðinn frægan þegar Netflix-þættirnir Tiger King fóru í loftið í febrúar á síðasta ári. Þættirnir fjölluðu um hann og dýragarðinn hans fyrir stór kattardýr en fljótt kom í ljós að Exotic er ekki allur þar sem hann er séður. Þættirnir enduðu á því að í ljós kom að Exotic hafði borgað félögum sínum fyrir að myrða Carol Baskin, óvin hans og dýrahirði, en hann afplánar nú fangelsisdóm fyrir það.
Exotic hefur glímt við krabbamein í blöðruhálskirtli í nokkra mánuði en segist nú viss um að krabbameinið hafi dreift sér í magann og nárann. Hann hafi ekki fengið læknisþjónustu síðan í október á síðasta ári. Hann segir í samtali við slúðurblaðið The Sun að færist krabbameinið á þriðja eða fjórða stig muni hann ekki þiggja læknisþjónustu. Hann sé „tilbúinn að deyja.“
Exotic afplánar dóminn í Fort Worth fangelsinu í Texas.
„Ég hef beðið eftir ristilskoðun og magaspeglun síðan í október. Læknisþjónusta í fangelsum er verri en í fyrir hunda í mannúðlegu samfélagi,“ segir Exotic.
Exotic segist hafa verið afar verkjaður í mjöðmum og nára undanfarið og að hann hafi verið með mikla magaverki í meira en ár. Hann segist vonast til að geta hlotið læknisþjónustu á næstunni og hann hyggst láta taka úr sér vefjasýni og fara í maga- og ristilspeglun.
„Fangelsið hefur samþykkt að ég gangist undir þessar rannsóknir til að geta staðfest á hvaða stigi krabbameinið er,“ skrifaði Exotic í tilkynningu í maí. „Ég er líkamlega þreyttur og hef lést gríðarlega. Munnsárin eru fáránleg og ég gubba meiru upp en ég borða.“