Var ekki möguleiki að allir myndu stíga frá borði og skilja allt eftir óstarfhæft Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 30. ágúst 2021 08:31 Borghildur Sigurðardóttir. Stöð 2 Borghildur Sigurðardóttir, annar af varaformönnum KSÍ, ræddi við Bítið á Bylgjunni í morgun um þá stöðu sem nú er uppi hjá Knattspyrnusambandi Íslands. Hún segir stjórn sambandsins ekki hafa gengið frá borði í heild sinni þar sem þá yrði sambandið óstarfhæft.
Guðni Bergsson, fyrrverandi formaður sambandsins, sagði starfi sínu lausu eftir maraþon fund um helgina í kjölfar þeirra atburða sem hafa átt sér stað síðustu daga. Í hans stað koma þau Gísli Gíslason og Borghildur, tímabundið allavega. Þau eru varaformenn sambandsins. „Mín upplifun af þessu máli er mjög erfið. Búið að vera átök, ef við getum orðað það svoleiðis,“ sagði Borghildur um upplifun sína af öllu því sem hefur gengið á. „Ég les fjölmiðla og samfélagsmiðla eins og aðrir. Ég fór að fá fréttir af einhverjum málum í ágúst, af öðrum málum frétti ég ekki fyrr en um helgina,“ svaraði Borghildur um hvenær hún hefði fyrst heyrt af þessum málum. „Ekki þannig að þau hafi verið rædd efnislega. Við ræddum að það væru komnar upplýsingar á samfélagsmiðlum. Það var síðan rædd á stjórnarfundi þar sem ákveðið var að skoða málin betur sem voru í umræðunni.“ „Það er hárrétt, það hefði átt að taka þetta öðrum tökum en gert var. Reyna að fara í þá vegferð sem við viljum fara í núna. Í raun og veru að standa upp, standa með þolendum og hlúa að þeim. Taka ákveðin skref í því.“ „Við ræddum það í þaula, fram og til baka. Að mínu mati var ekki möguleiki að allir myndu stíga frá borði og skilja allt eftir óstarfhæft,“ sagði Borghildur aðspurð hvort stjórn KSÍ hefði átt að víkja. Um framkvæmdastjóra sambandsins, Klöru Bjartmarz „Hann situr áfram. Ég ætla ekki að tjá mig um það,“ sagði Borghildur aðspurð hvort ábyrgð framkvæmdastjórans væri engin. „Við erum komin á þann stað sem við sögðum í gær. Við verðum að fá aðeins tíma. Við erum búin að vera alla helgina, held ég hafi verið 13-14 tíma í gær. Það að fólk ætlist til að öll mál séu leyst á nokkrum klukkutímum er ekki hægt, ekki framkvæmanlegt. Rosalega að mörgu að hyggja. Erm búin að lofa að fara í naflaskoðun, verðum að fá að hefja þá vegferð. Það mun taka tíma.“ Hvenær komu málin óformlega upp á stjórnarfundum? „Það var farið að ræða ákveðnar sögusagnir um miðjan ágúst.“ „Nei ekki neitt. Hluti af því sem hefur verið að koma fram hefur aldrei komið inn á stjórnarborð fyrr en nú um helgina,“ var svarið er Borghildur var spurð hvort málin – sem væru nokkurra ára gömul – hefðu ekki verið rætt fyrr en á þessu ári. Hvort framkvæmdastjóri og formaður hafi vitað eitthvað um málið en ákveðið að fara ekki með það alla leið til stjórnar: „Þau ákváðu að vinna með málið. Þau töldu sig bundin ákveðnum trúnaði til að fara ekki með það lengra. Fólk verður líka að átta sig á að þetta eru afskaplega erfið og flókin mál. Þarf að ríkja trúnaður í svona málum. Við erum bara í þeirri stöðu sem ég held að allt samfélagið sé í núna. Við vitum ekki hvernig á að bregðast við og hvað á að gera.“ „Já, það var óskað eftir því að Guðni (Bergsson) héldi trúnaði í því. Það allavega var svoleiðis. Það var talið að þetta mál hefði verið leyst í öðrum farvegi,“ að Guðni mátti ekki greina stjórn KSÍ frá málinu. „Það var að hálfu þolanda,“ sem óskað var eftir trúnaði. Um þagnarskyldusamninginn „Ég heyrði fyrst af því á föstudagskvöldið. Hún kom ekki inn á stjórnarborð, var ekki rædd við mig um það. „Ég held að það hefði þurft að koma því í þann farveg að stjórn hefði einhverskonar upplýsingar um að eitthvað væri um að ræða. Án þess að það væri endanlega farið í smáatriði á því.“ Framtíð: Næstu vikur og mánuðir hjá sambandinu „Við erum búin að leita okkur hjálpar, við viljum trúa þolendum og hlúa að þeim. Við verðum að taka stefnubreytingu. Það á ekki eingöngu við um Knattspyrnusambandið, hlýtur að fara eiga við um allt okkar samfélag. Ef að við ætlum að uppræta eitthvað þá verða allir að taka ákveðna stefnubreytingu og fara að vinna þannig.“ „Það verður ekkert auðveldara fyrir okkur en fyrir aðra. Þetta er þess eðlis, við þurfum að ákveða sem samfélag „hvar ætlum við að vera“ og ég get bara sagt það að ég er virkilega stolt af þeim þolendum sem hafa sagt „hingað og ekki lengra.“ Við ætlum ekki að búa við svona lengur. Mér finnst það svona í raun vera atriðið frekar en hver sagði hvað og hvar heldur hvað ætlum við að gera, hvernig ætlum við að fara í þetta og hverjir ætla að taka þátt.“ „Það eru gríðarlega margir líka sem eru ósáttir við að við ætlum að fara þessa leið. Held að allt samfélagið þurfi að lýta sér nær núna. Ég get bara vísað í orð Guðna forseta sem komu fyrir nokkrum árum fram í tölvupósti þar sem hann tekur afgerandi afstöðu með þolendum, þetta er það sem ákalliðer í samfélaginu í dag, ákallið er frá þolendum. Held að við ættum öll að draga andann, lýta okkur nær og spyrja hvort við ætlum við ekki öll að vera partur af þessu, hluti af þessari stefnubreytingu.“ Stjórn sammála um að bæði framkvæmdastjóri og formaður hefðu átt að láta vita af þessum málum? „Já, við vorum sammála um það.“ Er rétt að framkvæmdastjóri sitji áfram fyrst formaðurinn er farinn? „Ég ætla ekki að tjá mig um það. Við erum ekki komin lengra í þessu ferli en að taka þau skref sem við ákváðum að taka. Okkur fannst þau mikilvægast til að byrja með. Við hins vegar sögðum að við ætluðum að fara í ákveðna skoðun á okkar starfsemi, öllum okkar innri málefnum. Það er frekar ósanngjarnt að það hafi allt átt að klárast á örfáum klukkustundum.“ Var það rætt hvort framkvæmdastjórinn ætti að víkja? „Það var rætt hvað við ætlum að gera í því. Eins og staðan var vorum við að reyna komast að niðurstöðu hvernig ætlum við að halda áfram starfhæfu sambandi eða eigum við að labba frá borði eða eigum við að standa hér og taka þessi högg sem núna munu koma til að reyna koma hlutunum af stað í rétta átt, það var niðurstaðan,“ sagði Borghildur að endingu.
Fótbolti KSÍ Kynferðisofbeldi Bítið Landsliðsmenn sakaðir um kynferðisofbeldi Mest lesið Blá og marin rétt fyrir EM: „Vissi ekki hvort ég ætti að hlæja eða gráta“ Sport Ólafur baðst afsökunar eftir leik: „Ég er bara rosalega viðkvæmur eins og er“ Körfubolti Persónulegar ástæður fyrir brotthvarfi Vésteins Sport Real Madrid vill fara í viðræður við Liverpool um Trent Enski boltinn „Komum Gylfa Þór meira í boltann“ Fótbolti „Er þetta ljótasti maður sem þú hefur kysst?“ Körfubolti Mac Allister: Liverpool er bara rétt að byrja Enski boltinn „Ég fékk að setja þetta ofan í og guðirnir voru með mér í dag“ Körfubolti Klobbaði eldri bróður sinn á stóra sviðinu Fótbolti „Annar oddaleikurinn þar sem við lendum í algjörri þvælu“ Körfubolti Fleiri fréttir Hildur fékk svakalegt glóðarauga Real Madrid vill fara í viðræður við Liverpool um Trent Mac Allister: Liverpool er bara rétt að byrja Klobbaði eldri bróður sinn á stóra sviðinu „Þetta er eins og eldgamla tómatsósan“ „Settum meiri pressu á þá þegar líða tók á leikinn“ „Komum Gylfa Þór meira í boltann“ Kristófer: Þetta var alveg frábær tilfinning Uppgjörið: Víkingur - Fram 3-2 | Gylfi Þór skoraði fyrsta mark sitt í torsóttum sigri Víkings Uppgjörið: Afturelding - Stjarnan 3-0 | Nýliðarnir öflugir á heimavelli Aftur tapar Forest stigum í baráttunni um Meistaradeildarsæti Cecilía valin besti markvörðurinn í ítölsku deildinni Markvörðurinn mætti of seint í leikinn Uppgjörið: Breiðablik - KR 3-3 | Stórleikurinn stóðst væntingarnar Glódis Perla spöruð á bekknum „Gengur aldrei einn í Liverpool en kannski gerir þú það i Madrid“ María fagnaði sigri á Arsenal á sama degi og tilkynnt var um brottför hennar Valskonur ólíkar sér: Kallar eftir hungraðri Nadíu í stað Rhodes Amorim: Liðið ekki nógu gott til að vera í Meistaradeildinni Sjáðu Flóka færa Val fyrsta tapið, ÍA í stuði og hvernig Vestri fór á toppinn Wenger á móti umbuninni sem Man. Utd og Tottenham þrá Þorleifur snýr heim í Breiðablik Staðfestir brottför frá Liverpool Freyr á toppnum: „Ég elska Bergen“ Kane fékk loksins að syngja sigurlagið Uppgjör: FH - Valur 3-0| FH skellti Valsmönnum „Vantar hjarta og baráttu í mína menn“ „Náðum að nýta kröftuga byrjun með mörkum“ Lille bjargaði mikilvægu stigi Nik sendi Ástu skeyti: „Mikil eftirvænting fyrir þessari frumraun“ Sjá meira