Skoðun

XD kannast ekki við sitt rétta slag­orð

Jökull Sólberg skrifar

Í Silfrinu vildi Sjálfstæðisflokkurinn ekki kannast við að aðhyllast nýfrjálshyggju. Frambjóðandi XD hefur verið aðstoðarkona Guðlaugs Þórs utanríkisráðherra á kjörtímabilinu sem rennur nú sitt skeið á enda. Ráðherrann hefur áður deilt færslu á Instagram sem sýnir „surprise“ súkkulaðiköku frá aðstoðarmönnum sínum með mynd af Ronald Reagan með kúrekahatt, eitt af átrúnaðargoðum nýfrjálshyggjufólks.

Þetta fólk veit vel hvað nýfrjálshyggja er. Flokkurinn hefur farið frá því að reka nýfrjálshyggjustefnu og trúa því að hún þjóni hagsmunum meirihluta þjóðarinnar yfir í að þykjast ekki kannast við hugtakið sem hefur verið gengisfellt, meðal annars í Panama gagnalekanum sem varpaði ljósi á raunverulega efnastöðu efsta lags þjóðfélagsins, hér heima og á heimsvísu.

Flokkurinn þjónar ekki hagsmunum nema um 5% þess fylgis sem hann hefur í dag – hina raunverulegu auðkýfinga og nokkur vel launuð fylgitungl þeirra. Þessi litli hópur dugir ekki til að bera flokkinn inn í ráðuneytin. Þessvegna hefur flokkurinn snúið sér að loðnum slagorðum í von um að sínir vanaföstustu kjósendur takist að sauma saman slagorðabúta sem röksemd fyrir sínu atkvæði.

„Nýsköpun“ – í boði þeirra sem verja tugum milljarða í eftirlitslausar endurgreiðslur til stórfyrirtækja í nafni „rannsókna og vísinda“ og leggja niður Nýsköpunarmiðstöð.

„Fjölbreytt atvinnulíf“ – í boði þeirra sem verja auðhringi og þá fábreytni sem fákeppni og einokun elur af sér.

„Frelsi“ – í boði þeirra sem hafa varið og hvatt til þeirra mannfjandlegu starfsemi sem á sér stað í Útlendingastofnun.

„Stöðugleiki“ – í boði þeirra sem hafa brotið niður félagslega húsnæðiskerfið og leyft leigumarkaði að vera undir lágmarks eftirliti og með lágmarks réttindum leigjenda.

„Frjáls alþjóðaviðskipti“ – í boði þeirra sem svæfa skattrannsóknamál íslenskra alþjóðafyrirtækja með stjórnsýslufúski, sveltistefnu og seinagangi.

Flokkurinn treystir sér ekki til að lengja mál sitt um þessi slagorð. Hann veit að forn frægð er hans síðasta varnarvígi — best sé að krossa fingur og vona að lekinn verði sem minnstur.

Sósíalistar bjóða nú fram til Alþingis með fjölmörg tilboð til kjósenda. Þar vegur afmarkaðsvæðing húsnæðis og skattkerfisbreyting sem skilar sér í skattalækkun fyrir flestar tekjutíundir þungt, þó af mörgu öðru sé að taka. Allt er þetta gert til að stöðva og vinda ofan af þeim skaða sem frjálshyggja og auðræði hefur ollið á samfélaginu í stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins og flokka sem hafa hleypt honum í mikilvægustu ráðuneytin. Ef Sjálfstæðisflokkurinn hafði eitt sinn húmaníska taug og tengingu við sína kjósendur þá er sú tíð liðin.

Höfundur er frambjóðandi Sósíalistaflokksins og forritari.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×