Skoðun

Fram­sókn styður raf­í­þróttir

Aðalsteinn Haukur Sverrisson skrifar

Fyrir ekki svo löngu ritaði ég grein um reynslu mína og sonar míns, sem greindur er með ódæmigerða einhverfu, af rafíþróttum og hvernig þær hafa haft jákvæð áhrif á líf hans. Í dag er sonur minn enn virkur iðkandi í skipulögðu rafíþróttastarfi í Ármanni. Hann hefur styrkst félagslega, eignast nýja vini og á auðveldara með mannleg samskipti. Hann hefur einnig tileinkað sér reglubundnari hreyfingu, svefn og mataræði – allt atriði sem lögð er áhersla á í skipulögðu rafíþróttastarfi. Þetta er aðeins eitt jákvætt dæmi af mörgum um hvernig skipulagt tómstundastarf getur nýst á uppbyggilegan hátt fyrir börn og unglinga. Þegar við tökum breytingum samfélagsins með opnum örmum og hjálpum börnum og ungmennum að finna sína fjöl, hvort sem það er í tölvuleikjum eða öðru, lætur árangurinn ekki á sér standa.

Stuðningur í verki

Góðir innviðir eru mikilvægir til þess að skapa góða umgjörð í kringum þróttmikið barna- og unglingastarf, hvort sem um er að ræða hefðbundnar íþróttir, listsköpun eða aðrar tómstundir. Skipulagt rafíþróttastarf er þar engin undantekning, en á þeim tveimur árum frá því að slíkt starf hófst hér á landi hefur mörgum rafíþróttadeildum verið komið á fót víða um land, annað hvort frístandandi eða innan hefðbundinna íþróttafélaga. Fjöldi iðkenda hefur einnig vaxið í 1500 manns. Á nýlegri opnunarhátíð Arena, nýs þjóðarleikvangs rafíþrótta á Íslandi, undirritaði Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra og oddviti Framsóknar í Reykjarvíkurkjördæmi norður samkomulag við Rafíþróttasamband Íslands, sem er ætlað að efla þætti er stuðla að góðri geðheilsu ásamt því að veita upplýsingagjöf um þá þjónustu sem í boði er fyrir börn og ungmenni sem glíma við andlega vanlíðan.

Fjárfestum í fólki

Þungamiðja í stefnu Framsóknar er að fjárfesta í fólki líkt og flokkurinn hefur unnið ötullega að undanfarin 4 ár. Flokkurinn hefur lyft grettistaki í málefnum barna og unglinga með margþáttuðum aðgerðum í gegnum félags- og barnamálaráðuneytið og mennta- og menningarmálaráðuneytið sem bæði er undir forystu Framsóknar. Framsókn er óhrædd við að hugsa út fyrir kassann og láta verkin tala. Fyrrnefndur stuðningur við rafíþróttir er gott dæmi um slík verk, en það hefur ótvírætt forvarnargildi í baráttunni við félagslega einangrun vegna tölvuleikjaspilunar – enda er iðkendum kennt að umgangast tæknina í daglegu lífi, stjórna tækninni en ekki öfugt, virða samkomulag um skjátíma við foreldra og undirstrika mikilvægi þess að huga að andlegu og líkamlegu hreysti.

Heimsmeistarar krýndir á Íslandi

Sú góða umgjörð í kringum skipulagt rafíþróttastarf á Íslandi hefur vakið heimsathygli og komið Íslandi á kortið í þessum efnum. Mikilvæg sóknartækifæri felast í þeim góða grunni sem hér hefur verið lagður en í vikunni var tilkynnt um að stærsti rafíþróttaviðburður í heimi muni fara fram á Íslandi. Slíkt gerist ekki að sjálfu sér, heldur með markvissum stuðningi við grasrótarstarfið sem hefur vaxið og dafnað og tryggt að iðkendur finni öruggt, hvetjandi og uppbyggilegt umhverfi til iðkunar undir sterkri leiðsögn fagfólks. Þannig virkjum við enn frekar þann mikla mannauð sem býr í æsku okkar góða lands. Við óskum eftir þínum stuðningi í komandi kosningum til halda áfram að fjárfesta í fólkinu okkar, setjum X við B og látum framtíðina ráðast á miðjunni!

Höfundur situr í 2. sæti á lista Framsóknar í Reykjavík suður.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×