Dæmdur í bann fyrir hómófóbískar færslur sem hann skrifaði er hann var átján Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. september 2021 16:00 Peterborough United verður án aðalframherja síns, Jonsons Clarke-Harris, í næstu fjórum leikjum í ensku B-deildinni. getty/James Holyoak Færslur sem Jonson Clarke-Harris, framherji Peterborough United, skrifaði á samfélagsmiðla þegar hann var átján ára hafa nú komið honum í koll, níu árum seinna. Færslurnar voru fordómafullar í garð samkynhneigðra og enska knattspyrnusambandið hefur dæmt Clarke-Harris í fjögurra leikja bann. Hann fékk einnig 5.300 punda sekt sem jafngildir rúmlega níu hundruð þúsund íslenskra króna. Clarke-Harris skrifaði færslurnar á samfélagsmiðla á tímabilinu október 2012 til mars 2013 þegar hann var ungur leikmaður á láni hjá Southend United og Bury. Í úrskurði enska knattspyrnusambandsins segir að færslurnar hafi verið móðgandi, grimmar, óviðeigandi og varpað rýrð á íþróttina. Auk þess að fá bann og sekt þarf Clarke-Harris að sitja endurmenntunarnámskeið. Hann játaði sök í málinu. Vegna bannsins missir Clarke-Harris af leikjum gegn Coventry, Bournemouth, Bristol City og Middlesbrough í ensku B-deildinni. Clarke-Harris, sem er 27 ára, lék með Peterborough á árunum 2012-13 og gekk svo aftur í raðir liðsins í fyrra. Hann var markahæstur í ensku C-deildinni á síðasta tímabili með 31 mark. Peterborough er í 21. sæti ensku B-deildarinnar með sjö stig eftir átta leiki. Clarke-Harris skoraði í 3-0 sigri liðsins á Birmingham City í síðustu umferð.
Færslurnar voru fordómafullar í garð samkynhneigðra og enska knattspyrnusambandið hefur dæmt Clarke-Harris í fjögurra leikja bann. Hann fékk einnig 5.300 punda sekt sem jafngildir rúmlega níu hundruð þúsund íslenskra króna. Clarke-Harris skrifaði færslurnar á samfélagsmiðla á tímabilinu október 2012 til mars 2013 þegar hann var ungur leikmaður á láni hjá Southend United og Bury. Í úrskurði enska knattspyrnusambandsins segir að færslurnar hafi verið móðgandi, grimmar, óviðeigandi og varpað rýrð á íþróttina. Auk þess að fá bann og sekt þarf Clarke-Harris að sitja endurmenntunarnámskeið. Hann játaði sök í málinu. Vegna bannsins missir Clarke-Harris af leikjum gegn Coventry, Bournemouth, Bristol City og Middlesbrough í ensku B-deildinni. Clarke-Harris, sem er 27 ára, lék með Peterborough á árunum 2012-13 og gekk svo aftur í raðir liðsins í fyrra. Hann var markahæstur í ensku C-deildinni á síðasta tímabili með 31 mark. Peterborough er í 21. sæti ensku B-deildarinnar með sjö stig eftir átta leiki. Clarke-Harris skoraði í 3-0 sigri liðsins á Birmingham City í síðustu umferð. Championship-deildin er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. EFL Championship er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Championship-deildin er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. EFL Championship er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Enski boltinn Mest lesið Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Enski boltinn Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Fótbolti Komnir með þrettán stiga forskot Enski boltinn Elísabet byrjar á tveimur töpum Fótbolti „Okkur langar virkilega að vinna titla hérna“ Sport Uppgjörið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu Handbolti Orri með fjögur gegn strákunum hans Guðmundar Handbolti Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Fótbolti Sektins hans Messi er leyndarmál Fótbolti Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Enski boltinn Fleiri fréttir Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Chelsea skrapaði botninn með Southampton Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ „Spiluðum mjög vel í dag“ „Við þurfum annan titil“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah „Eigum skilið að finna til“ Asensio hetjan í endurkomu Villa Sjá meira