Howe tekinn við Newcastle: „Þetta er stórkostlegt tækifæri“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. nóvember 2021 15:16 Eddie Howe er fyrsti knattspyrnustjórinn sem vellauðugir eigendur Newcastle United ráða. getty/Robin Jones Newcastle United hefur staðfest ráðningu Eddies Howe sem knattspyrnustjóra liðsins.
Howe tekur við Newcastle af Steve Bruce sem nýir eigendur félagsins ráku á dögunum. Howe hefur verið án starfs síðan hann hætti hjá Bournemouth í fyrra. Hinn 43 ára Howe stýrði Bournemouth á árunum 2008-11 og 2012-20. Hann stýrði liðinu í öllum fjórum deildunum á Englandi, þar á meðal fimm ár í ensku úrvalsdeildinni. „Það er mikill heiður að verða þjálfari félags eins og Newcastle,“ sagði Howe í fréttatilkynningu frá Newcastle. „Þetta er stórkostlegt tækifæri en það er mikil vinna fyrir höndum. Ég iða í skinninu að komast á æfingasvæðið og vinna með leikmönnunum.“ - We are delighted to confirm the appointment of Eddie Howe as the club s new head coach.Welcome to Newcastle United, Eddie! — Newcastle United FC (@NUFC) November 8, 2021 Eftir að Bruce var rekinn reyndi Newcastle að fá Unai Emery, knattspyrnustjóra Villarreal, en án árangurs. Þá sneru sádí-arabískir eigendur Newcastle sér að Howe. Hans bíður krefjandi verkefni en Newcastle er í nítjánda og næstneðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar og er eina lið deildarinnar sem hefur ekki enn unnið leik. Fyrsti leikur Newcastle undir stjórn Howes er gegn nýliðum Brentford laugardaginn 20. nóvember.
Enski boltinn Mest lesið Loksins, loksins unnu skáldin kvalara sína! Fótbolti Iðunn og Guðrún Fanney Norðurlandameistarar í skák Sport „Þetta er fallegasti klúbbur í heimi“ Fótbolti Uppgjörið: Fram - FH 34-33 | Fram í úrslit eftir tvíframlengdan leik Handbolti „Við ætlum að klára að Íslandsmeistaratitilinn“ Handbolti Uppgjörið: KR - ÍA 5-0 | Skemmtikraftarnir slógu ekki slöku við Íslenski boltinn Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 101-89 | Njarðvík með sópinn á lofti Körfubolti „Kom bara í hörkustandi inn í þennan leik“ Íslenski boltinn Þórir og félagar nældu í mikilvægt stig gegn Atalanta Fótbolti Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 1-2 | Ótrúleg endurkoma Garðbæinga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Willum skoraði og lagði upp í stórsigri Birmingham City City í úrslit þriðja árið í röð Englandsmeistaratitillinn tryggður með stæl Höjlund bjargaði United i blálokin á móti tíu mönnum Bournemouth Fjögur lið gætu staðið heiðursvörð fyrir Liverpool Tímabilið gæti verið búið hjá Marcus Rashford Jón Daði skoraði og Victor vann Íslendingaslaginn Newcastle felldi Ipswich og komst upp í þriðja sætið Chelsea upp í fjórða sætið Evra vill berjast við Suárez í búrinu: Hann má meira að segja bíta mig „Vilja allir spila fyrir Man United“ Kidd kominn í eigendahóp Everton Leicester kveður „geitina“ sem félagið sótti í utandeildina Snýr aftur eftir lungnabólguna Liverpool getur tryggt sér titilinn á sunnudaginn Fór út í dulargervi eftir að Barton byrjaði að bauna á hana Jafnt á Emirates og Liverpool þarf að bíða Arteta ætlar ekki að hvíla Saka fyrir Meistaradeildina Sagan segir að Arsenal vinni Meistaradeildina Rekstur Chelsea: Eins og að tapa sextíu milljónum á dag í tíu ár Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Klásúlan virkjuð en enn óvíst hvort Chelsea kaupi Sancho Dramatík í Manchester United vill fá Cunha Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Reyna að lesa eitthvað út úr fagni Trents Alexander-Arnold Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Biður stuðningsfólk afsökunar á skítnum „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Sjá meira