„Virkilega pirrandi og maður er fúll og svekktur“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. nóvember 2021 20:40 Ásta Eir Árnadóttir með boltann í leiknum í kvöld. vísir/vilhelm Ásta Eir Árnadóttir, fyrirliði Breiðabliks, var að mörgu leyti sátt með frammistöðuna gegn Kharkiv í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Hún var hins vegar sár og svekkt með úrslitin. Blikar töpuðu 0-2 og eru áfram á botni B-riðils. „
Þetta er virkilega pirrandi og maður er fúll og svekktur. Mér fannst við spila vel á köflum og eiga meira skilið út úr leiknum. En það skiptir ekki máli þegar maður tapar. Það er ekkert hægt að gera í því núna. Maður er enn frekar pirraður,“ sagði Ásta á blaðamannafundi eftir leikinn á Kópavogsvelli í kvöld. Fyrri leikur Breiðabliks og Kharkiv endaði með markalausu jafntefli. Ásta var sáttari með frammistöðuna í leiknum í kvöld en leiknum í Úkraínu fyrir viku. „Við vorum alveg sáttar við stigið í síðasta leik því við vorum ekki nógu góðar í þeim leik. Ég er mjög svekkt að við höfum ekki fengið neitt út úr þessum leik og bara eitt stig út úr þessum tveimur leikjum. Þetta voru andstæðingarnir sem við áttum mesta möguleika gegn,“ sagði Ásta. „Við verðum að taka það jákvæða úr þessum leik. Það var mjög góð bæting á milli leikja og þetta er besti leikur okkar í riðlakeppninni hvað varðar að halda boltanum og allt svoleiðis. Við gerðum það sem við æfðum síðustu vikuna. Ég er ánægð með hvernig við komum inn í þennan leik miðað við síðasta leik. En það er pirrandi að það gaf ekki neitt. Þótt frammistaðan hafi verið góð erum við bara enn með eitt stig.“
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Breiðablik Mest lesið Fær meira fyrir hálftíma ræðu en fyrir að spila heilt tímabil Körfubolti „Ég fór ekkert alltof seint að sofa“ Handbolti Launaði greiðann og gaf liðsfélaganum sigurinn Formúla 1 Dagskráin í dag: Jólamánuðurinn hefst á allskonar Sport „Ég þarf smá útrás“ Handbolti Frábær byrjun Slot ekki nóg til að slá út Solskjær Enski boltinn Sjö marka fyrri hálfleikur skaut Skyttunum í annað sætið Enski boltinn Tryggvi frákastahæstur í tapi gegn gömlu félögunum Körfubolti Öruggur sigur ÍBV gegn Val Handbolti Musiala bjargaði stigi fyrir Bayern Fótbolti Fleiri fréttir Fallbaráttulið Nantes tók stig af meisturunum Musiala bjargaði stigi fyrir Bayern AC Milan aftur á sigurbraut Mark dæmt af Elíasi en liðið upp um fjögur sæti Þrenna og vítaþrenna í leikjum dagsins Sjö marka fyrri hálfleikur skaut Skyttunum í annað sætið HM í fótbolta 2034 mun fara fram um vetur Börsungar töpuðu óvænt á heimavelli Frábær byrjun Slot ekki nóg til að slá út Solskjær Óskar Hrafn opnar sig um Haugesund: Best að falla á eigið sverð Messi segist sakna Barcelona Guardiola: Núna þarf ég að sanna mig Guðmundur gæfi Kelleher risa samning: „Hverrar krónu virði og rúmlega það“ Fékk rétt svör við öllu nema um bjórinn Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ Sjá meira