„Það er frábær tilfinning að fá þetta í loftið. Þetta er í raun bara fyrsta útgáfan og vinnan við uppfærslu hefur verið hafin og ég er ennþá meira spenntur að koma henni í loftið og sýna fólki hvað við höfum verið að gera,“ segir Auðun.
Íslenskt efni
„Þetta verður staður fyrir hlustendur til þess að uppgötva íslenskt efni, kynnast efnisframleiðendum á nýjan hátt og koma sjónarmiðum hlustenda og gagnrýni á framfæri.“
Verkefnið Tal hefur staðið yfir í nokkra mánuði en hefur verið á teikniborðinu hjá Auðuni síðan á síðasta ári. Fyrsta hlaðvarpið sem þeir framleiddu og settu í loftið var áskriftarhlaðvarpið Blökastið.
„Viðbrögðin hafa verið frábær. Gaman að fylgjast með því þróast, við erum að prófa allskonar þætti í mynd, green screen og meira að segja þáttur í mynd frá Tene. Blökastið er ótrúlega skemmtilegt og verður bara skemmtilegra.“
Nú þegar eru þúsundir áskrifenda að Blökastinu og þeim fjölgar stöðugt. Nú hafa fleiri hlaðvörp byrjað í framleiðslu hjá Tal eins og Þungavigtin og Átján plús. Hópurinn mun svo halda áfram að stækka.

Stuðningur við þá sem búa til hlaðvörp
„Við erum að búa til umhverfi fyrir hlaðsvarpsstjórnendur þar sem þau geta einbeitt sér að búa til frábært efni og við hjálpum þeim að vaxa. Það sem er líka spennandi við Tal, er að það er stuðningur til að selja áskriftir. Þar fá skapandi einstaklingar læst svæði sem aðeins áskrifendur hafa aðgang að og geta þar byggt upp sitt eigið samfélag og skapað tekjur.“
Svæðið býður upp á möguleikann að setja inn mynd-, hljóð- og textaefni ásamt eiginleikum eins og athugasemdakerfi, póstkerfi og geta einnig farið í beina útsendingu fyrir áskrifendur.
„Hver sem er getur komið til okkar með hugmynd eða fyrirspurnir. Það er hnappur uppi í hægra horninu á Tal.is sem heitir Ég vil vinna með Tal, þar sem við hvetjum alla til þess að hafa samband. Sama hvort hugmyndin er ný eða hvort þau eru nú þegar komin í loftið. Við erum spennt að hitta nýja “Tal”-enta og bendum fólki sem hefur áhuga á að hafa samband með því að smella á hnappinn,“ segir Auðun að lokum.