Veran sagði í samtali við BFM TV að ómíkron yrði ráðandi afbrigðið í landinu í snemma í janúar. Engar nýjar aðgerðir væru á teikniborðinu og jafnvel þótt ekki væri hægt að útiloka neitt þá vonuðust stjórnvöld til að auknar bólusetningar yrðu til þess að halda veirunni í skefjum.
Á Bretlandseyjum eru 129 einstaklingar á spítala með ómíkron og fjórtán hafa látist.
Gillian Keegan, undirráðherra í heilbrigðisráðuneytinu, sagði í samtali við Sky News að stjórnvöld myndu ekki hika við að grípa til hertra aðgerða ef tölurnar sýndu að það væri nauðsynlegt.
Boris Johnson forsætisráðherra greindi hins vegar frá því í gær að engar nýjar aðgerðir yrðu tilkynntar fyrir jól en opnaði á þann möguleika að eitthvað yrði gert eftir hátíðirnar.
Johnson er í nokkuð erfiðri stöðu, þar sem sérfræðingar hafa kallað eftir aðgerðum síðustu daga og vikur á sama tíma og þær eru afar umdeildar innan Íhaldsflokksins.
Í Þýskalandi hefur kanslarinn Olaf Scholz varað við því að fimmta bylgjan sé „rétt handan við hornið“ og stjórnvöld hafa tilkynnt um nýjar sóttvarnaðgerðir sem munu taka gildi í síðasta lagi 28. desember.
Stjórnvöld í Portúgal hafa fyrirskipað lokun bara og næturklúbba og fólk verið hvatt til að vinna heima frá 26. desember til 9. janúar. Þá verður ekki heimilt að safnast saman í stærri hópum en sem telja tíu einstaklinga utandyra á gamlárskvöld.
775 létust úr Covid í Póllandi á föstudag en um er að ræða mesta fjölda sem látist hefur á einum degi í fjórðu bylgju faraldursins þar í landi. Um 18 þúsund greindust með veiruna í Póllandi á föstudaginn.