James Wade fór auðvelda leið áfram úr 32-manna úrslitunum því andstæðingur hans, Vincent van der Voort, varð að draga sig úr keppni eftir að hafa greinst með kórónuveirusmit. Því eru tvær viðureignir á dagskrá í kvöld í stað þriggja.
Dramatíkin var hins vegar allsráðandi í fyrsta leik dagsins þar sem Hollendingurinn Dirk van Duijvenbode, kallaður „Aubergenius“ vegna vinnu sinnar við að rækta eggaldin, vann sigur.
Hollendingurinn vann Englendinginn Ross Smith 4-3 eftir að hafa lent 3-0 undir. Staðan var 2-2 í fjórða setti og Smith fékk tækifæri til að tryggja sér sigur í einvíginu en klúðraði því. Van Duijvenbode nýtti sér það, vann sitt fyrsta sett og leit ekki um öxl eftir það.
' !
— PDC Darts (@OfficialPDC) December 27, 2021
His reaction says it all!
He's not happy with his performance at all here, but Dirk gets a set on the board and he saves his campaign!#WHDarts pic.twitter.com/jKr8XaIQLk
Van Duijvenbode mætir sigurvegaranum úr leik Gerwyn Price og Kim Huybrechts í 16-manna úrslitum, en sá leikur fer fram í kvöld og er sýndur á Stöð 2 Sport 3 eins og allt mótið.
Sigur Michael Smith á William O‘Connor var mun meira sannfærandi, þó að Írinn hafi unnið fyrsta settið. Smith vann að lokum 4-2 sigur og á fyrir höndum leik við Jonny Clayton eða Gabriel Clemens í 16-manna úrslitum. Clayton og Clemens mætast í kvöld.
Handboltamarkvörðurinn fyrrverandi Florian Hempel frá Þýskalandi varð svo að játa sig sigraðan gegn Raymond Smith frá Ástralíu. Smith tók forystuna og vann fyrstu tvö settin áður en Hempel náði að svara fyrir sig.
Það reyndist þó stutt svar og Smith vann öruggan sigur, 4-1. Hann mætir Steve Lennon eða Mervyn King í næstu umferð sem fram fer 29.-30. desember.