Flugeldasala hefur gengið vel í ár að sögn sölustjóra hjá Landsbjörg. Stjörnuljós, rakettur og stórar bombur eru venju samkvæmt vinsælastar.
Þetta hefur að einhverju leyti verið hamfaraár. Er fólk spennt að sprengja það burt?
„Já eigum við ekki að segja að fólk sé mjög spennt fyrir kvöldinu. Það er að minnsta kosti mjög mikil spenna hér inni,“ sagði Edda Anika Einarsdóttir, sölustjóri Gróubúð.
„Ég kaupi nú alltaf eitthvað pínu lítið en það hefur minnkað verulega með árunum en nú sá ég ástæðu til þess að reyna að finna mér eitthvað til þess að skjóta fjandans veiruna á braut. Nú verður hún skotin á braut,“ sagði Stefán Guðsteinsson.
Þegar fréttastofu bar að garði var hópur ferðamanna í kynningarferð í flugeldasölunni, en það er árleg hefð.
„Ég skýri fyrir þeim sprengigleði Íslendinga. Ég skýri fyrir þeim samtökin, Slysavarnafélagið Landsbjörg, björgunarsveitina og hvernig við byggjum þetta upp. Þetta vekur alltaf mikla athygli þegar við segjum frá því hvernig við gerum þetta á Íslandi. Bæði flugeldarnir og björgunarstarfið,“ sagði Þorsteinn Þorkelsson, björgunarsveitarmaður.
„En það eru útlendingar sem hafa komið hingað nokkur ár í röð og eru komnir til Íslands til þess að skjóta flugeldum og þeir koma og kaupa almennilega flugelda. Styrkja okkur vel.“
Á að taka á því í kvöld?
„Já svona eins og aðstæður bjóða upp á já,“ sagði Stefán.
Einhver skilaboð inn í nýja árið?
„Fara varlega. Bæði í flugeldamálum og veirumálum. Það hlýtur að vera markmið okkar að komast út úr þessum fjanda.“