Ávarp undan sænginni fáanleg á vínyl Ritstjórn Albúmm.is skrifar 6. janúar 2022 14:31 Tómas R Einarsson og Ragnhildur Gísladóttir Komin er út vínyl plata af söng plötunni, Ávarp undan sænginni sem kom út í ágúst s.l. Þar er á ferð söngplata með tíu lögum sem Tómas R. Einarsson hefur gert við kvæði ýmissa skálda og er efni ljóðanna ást og söknuður. Ragnhildur Gísladóttir syngur öll lögin en hljóðfæraleikarar eru auk bassaleikarans Tómasar, Ómar Guðjónsson […] Komin er út vínyl plata af söng plötunni, Ávarp undan sænginni sem kom út í ágúst s.l. Þar er á ferð söngplata með tíu lögum sem Tómas R. Einarsson hefur gert við kvæði ýmissa skálda og er efni ljóðanna ást og söknuður. Ragnhildur Gísladóttir syngur öll lögin en hljóðfæraleikarar eru auk bassaleikarans Tómasar, Ómar Guðjónsson á gítar, Davíð Þór Jónsson á píanó og hammondorgel og Magnús Trygvason Elíassen á trommur og slagverk. Titill plötunnar, Ávarp undan sænginni, er sóttur í samnefnt ljóð Kristínar Svövu Tómasdóttur: Er þessi dagur bæði upphaf og endir / eins og honum ber að vera / eða hlykkjast hann eftir hringveginum / eins og dagarnir á undan honum / og dagarnir á undan dögunum á undan honum…? Vínylplatan er fáanleg í helstu plötubúðum höfuðborgarsvæðisins og í nokkrum verslunum Pennans, þar á meðal á Akureyri. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected]. Tónlist Mest lesið Vörur sem flugfreyjur kaupa í Bandaríkjunum Lífið VÆB-bræður fyrstir á svið í Eurovision Lífið Stefán Einar og Sara Lind selja parhúsið Lífið Stjörnulífið: Eddan, rauðar blúndur og afmæli í París Lífið Adolescence: Börn ekki lengur örugg ein inni í herbergi Lífið Í skýjunum með að vera fyrstir Tónlist Úr svefnherbergispoppi í drum-n-bass: „Fólkið var ógeðslega mikið að fíla þetta“ Lífið „Þarna brotnaði ég bara niður og grét og grét“ Lífið Richard Chamberlain er látinn Lífið Löng fangelsisvist blasir við popparanum Lífið
Komin er út vínyl plata af söng plötunni, Ávarp undan sænginni sem kom út í ágúst s.l. Þar er á ferð söngplata með tíu lögum sem Tómas R. Einarsson hefur gert við kvæði ýmissa skálda og er efni ljóðanna ást og söknuður. Ragnhildur Gísladóttir syngur öll lögin en hljóðfæraleikarar eru auk bassaleikarans Tómasar, Ómar Guðjónsson á gítar, Davíð Þór Jónsson á píanó og hammondorgel og Magnús Trygvason Elíassen á trommur og slagverk. Titill plötunnar, Ávarp undan sænginni, er sóttur í samnefnt ljóð Kristínar Svövu Tómasdóttur: Er þessi dagur bæði upphaf og endir / eins og honum ber að vera / eða hlykkjast hann eftir hringveginum / eins og dagarnir á undan honum / og dagarnir á undan dögunum á undan honum…? Vínylplatan er fáanleg í helstu plötubúðum höfuðborgarsvæðisins og í nokkrum verslunum Pennans, þar á meðal á Akureyri. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].
Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].
Tónlist Mest lesið Vörur sem flugfreyjur kaupa í Bandaríkjunum Lífið VÆB-bræður fyrstir á svið í Eurovision Lífið Stefán Einar og Sara Lind selja parhúsið Lífið Stjörnulífið: Eddan, rauðar blúndur og afmæli í París Lífið Adolescence: Börn ekki lengur örugg ein inni í herbergi Lífið Í skýjunum með að vera fyrstir Tónlist Úr svefnherbergispoppi í drum-n-bass: „Fólkið var ógeðslega mikið að fíla þetta“ Lífið „Þarna brotnaði ég bara niður og grét og grét“ Lífið Richard Chamberlain er látinn Lífið Löng fangelsisvist blasir við popparanum Lífið