Lífið

Löng fangelsis­vist blasir við popparanum

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Sean Kingston er þekktur fyrir smellina Beautiful Girls og Eenie Meenie.
Sean Kingston er þekktur fyrir smellina Beautiful Girls og Eenie Meenie. Getty/Jason Koerner

Rapparinn Sean Kingston hefur verið dæmdur sekur fyrir margra milljóna króna fjársvik. Hann á yfir höfði sér marga tuga ára fangelsisvist fyrir lögbrotin.

Kingston og Janice Turner, móðir hans, voru dæmd sek um fjögur tilfelli af fjársvikum og eina tilraun til fjársvika. Svikin voru upp á um eina milljón bandarískra dollara sem samsvarar rétt rúmlega 132 milljónum íslenskra króna.

Atburðarásin hófst í maí árið 2024 þegar mæðginin voru handtekin í Flórída-fylki í Bandaríkjunum af lögregluteymi sem réðst inn í hús Kingston. Þá var búið að ákæra Kingston fyrir þjófnað.

Í júlí það sama ár voru þau mæðginin ákærð fyrir áðurnefnd fjársvik. Kingston og Turner þóttust kaupa dýrar lúxusvörur, svo sem armbandsúr og bíla, en fölsuðu síðan kvittanir sem sýndu að millifærslur fyrir vörurnar myndu berast innan nokkurra daga. 

Eitt af helstu sönnunargögnunum, samkvæmt umfjöllun Variety, voru skilaboð sem Kingston sendi á móður sína.

„Ég sagði þér að gera falska kvittun svo það lítur út fyrir að millifærslan muni berast innan nokkurra daga,“ skrifaði Kingston.

Moshe Edery, skartgripasali, bar vitni fyrir dómi þar sem hann sagðist hafa gefið Kingston Audemars Piguet úr að virði 285 þúsund dollara eða um 37 og hálf milljón króna. Fyrir gjöfina hafi Kingston sagst ætla taka Edery með sér á rauðan dregil og í tökur á tónlistarmyndbandi. Þá hafi hann sent Edery skjáskot af falskri millifærslu. Edery var rekinn úr starfi fyrir gjöfina eftir að Kingston greiddi ekki.

Samkvæmt umfjöllun Page Six verður dómsuppkvaðning Kingston og Turner 11. júlí næstkomandi. Hámarksrefsing fyrir hvert af þessum fimm brotum sem mæðginin hafa verið dæmd sek um eru tuttugu ár. Kingston og Turner horfa því upp á marga tuga ára fangelsisvist fyrir lögbrotin.

Sean Kingston er helst þekktur fyrir lögin Beautiful Girls, sem kom út árið 2007 og Eenie Meenie þar sem poppstirnið Justin Bieber syngur með. Hann kom til Íslands árið 2015 þar sem hann spilaði á busaballi Verslunarskóla Íslands. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.