Þetta staðfestir Ævar Pálmi Pálmason, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Vísi. RÚV greindi fyrst frá úrskurðinum.
Ævar segir að rannsóknin sé umfangsmikil og miði vel áfram. Rúmlega 40 hafi mætt í skýrslutöku hjá lögreglu vegna málsins og um helmingur þeirra séu börn.
Grunaður um að hafa sent ellefu ára barni klámfengin skilaboð
Maðurinn er grunaður um fjölmörg blygðunarsemisbrot gegn börnum og barnaverndarlagabrot. Landsréttur staðfesti í desember fyrri gæsluvarðhaldsúrskurðinn en í dómnum kemur fram að lögregla hafi 22 mál til rannsóknar sem tengjast manninum. Unnið væri að því að afla frekari gagna vegna rannsóknar málanna.
Hann er grunaður um að hafa sent börnum á aldrinum ellefu til sextán ára ýmist klámfengin skilaboð og/eða myndir af kynferðislegum toga í gegnum samskiptaforritið Snapchat.
Í nokkrum málum er hann einnig grunaður um að hafa reynt að fá börnin til að hitta sig en hann er meðal annars grunaður um að hafa reynt að mæla sér mót við ellefu ára gamalt barn eftir að hafa sent því klámfengin skilaboð.
Er það mat lögreglu að um sé að ræða afbrotahrinu sem nauðsynlegt sé að stöðva. Brotaferill mannsins hafi verið nánast samfelldur frá því í maí á þessu ári.
Ítrekað brotið af sér eftir að honum var sleppt úr haldi
Samkvæmt heimildum fréttastofu er um að ræða karlmann sem var handtekinn í sumar eftir að hafa sett sig í samband við fimm ólögráða stúlkur, viðhaft við þær kynferðislegt tal og reynt að fá þær til að hitta sig.
Eftir að manninum var sleppt úr haldi er hann grunaður um að hafa ítrekað brotið af sér með sams konar hætti. Fréttastofa greindi frá því í júní að fjölmargar tilkynningar hefðu borist lögreglu frá foreldrum vegna mannsins. Hann hefur áður komið við sögu lögreglu, bæði hér á landi og erlendis. Hann var einn af þeim sem reyndi að hitta 13 ára gamla tálbeitu í fréttaskýringaþættingum Kompás árið 2006.