John Stockton neitar að vera með grímu og gamli skólinn ógildir ársmiðana hans Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. janúar 2022 15:30 John Stockton hefur efasemdir um gagnsemi bólusetninga við kórónuveirunni og vill fyrir alla muni ekki bera grímu. getty/Bryan Bedder John Stockton, stoðsendingahæsti leikmaður í sögu NBA-deildarinnar, má ekki lengur mæta á leiki gamla háskólans síns því hann neitar að bera grímu.
Stockton lék með Gonzaga háskólanum á árunum 1980-84 og treyja hans, númer tólf, hangir uppi í rjáfri á heimavelli liðsins. Stockton á ársmiða á leiki Gonzaga en nú hefur skólinn gert þá ógilda vegna tregðu Stocktons til að vera með grímu á leikjum. „Þeir báðu mig um að vera með grímu og verandi þekktur og þar með aðeins sýnilegri en aðrir skar ég mig aðeins úr. Þess vegna fengu þeir kvartanir og þeim fannst þeir annað hvort þurfa að biðja mig um að vera með grímu eða ógilda miðana,“ sagði Stockton. Hann viðurkennir að þessi uppákoma geri sambandið við gamla skólann aðeins flóknara en er þess fullviss að tengslin muni ekki rofna. Stockton lék allan sinn feril í NBA með Utah Jazz. Enginn leikmaður í sögu NBA hefur gefið fleiri stoðsendingar og stolið boltanum oftar en hann. Stockton komst tvisvar í úrslit NBA, 1997 og 1998, en tapaði í bæði skiptin fyrir Michael Jordan og félögum hans í Chicago Bulls.
Bandaríski háskólakörfuboltinn NBA Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Fótbolti Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Körfubolti „Pínu erfitt að hlæja að Kára“ Sport Segja að nýja reglan eyðileggi sportið Sport Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Fótbolti Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fótbolti Þrjátíu persónulegar bætingar á MÍ og Eir Chang tvöfaldur meistari Sport Fleiri fréttir Popovich kemur ekki til baka á þessu tímabili Loksins fékk Lakers að sjá Luka eins og við þekkjum hann Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Uppselt á körfuboltalandsleikinn á morgun Ruglaðist á Tramadol og Toradol og féll á lyfjaprófi Slagur um stól formanns KKÍ LeBron með fjörutíu stig í fjarveru Doncic: „Hann storkar lögmálunum“ Fær ekki að spila á Íslandi vegna gamals dóms: „Ekki ógn við þjóðina“ Bætti skólamet pabba síns Undrið Wembanyama frá það sem eftir lifir leiktíðar Martin: Skemmtilegra að tryggja þetta fyrir fullri höll Uppgjör: Ungverjaland - Ísland 87-78 | Afleitur annar leikhluti mjög dýr Verður aðeins sá átjándi til að spila níutíu landsleiki Gætu tryggt EM sætið í kvöld: „Skrítin staða að vera í“ Fimm sigrar og eitt grátlegt tap í síðustu sjö landsleikjum Martins Fóturinn tekinn af körfuboltapabbanum kjaftfora Geta fagnað EM sæti þrátt fyrir tap: Fjórar leiðir inn á EM Stólarnir stríddu toppliðinu „Efri hlutinn gefur okkur smá andrými“ Uppgjörið: Hamar/Þór - Valur 83-89 | Valskonur tryggðu sér sæti í efri hlutanum Uppgjörið: Njarðvík - Þór Ak. 94-80 | Sigurganga Njarðvíkur heldur áfram Er von á öðru meistaraplani frá Baldri? Strákarnir á skólabekk fyrir Ungverjaleik Kyrie Irving vill spila með Áströlum á Ólympíuleikunum Tommi vildi ekki meiða Albert Guðmunds og Nablinn harður í horn að taka á vellinum Valdi flottasta búning deildarinnar „Þetta var bara ljótur körfuboltaleikur í alla staði“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 62-66 | Lífsnauðsynlegur sigur gestanna Kristinn Albertsson býður sig fram til formanns KKÍ Helena Sverris hrósar Diljá: „Þá er hún óstöðvandi“ Körfuboltinn vaknaður á Akranesi: Níu sigrar í röð og stefna á Bónus-deildina Sjá meira