Eldflaugin kallast Hwasong-12 en talið er að hægt sé að skjóta henni að skotmörkum í rúmlega fjögur þúsund kílómetra fjarlægð. Í yfirlýsingu á vef KCNA, opinberri fréttaveitu Norður-Kóreu, segir að tilraunaskotið hafi gengið út á að tryggja öryggi eldflaugarinnar.
Myndir sem fylgdu yfirlýsingunni eiga að sýna að eldflaugin hafi farið út í geim.
AP fréttaveitan hefur eftir embættismönnum í Japan og Suður-Kóreu að eldflaugin hafi farið í tvö þúsund kílómetra hæð og hún hafi lent í sjónum milli Kóreuskagans og Japans, í um 800 kílómetra fjarlægð frá skotstað.
Undanfarnar vikur hafa yfirvöld í Norður-Kóreu skotið fjölda skammdrægra eldflauga á loft. Alls hefur sjö eldflaugum verið skotið frá Norður-Kóreu á undanförnum mánuði en þetta var í fyrsta sinn frá 2017 sem gerð var tilraun með eldflaug af þessari stærð sem getur borið kjarnorkuvopn.
Þá var spennan mikil á Kóreuskaga og var það um það leyti sem Donald Trump, þáverandi forseti Bandaríkjanna, hét því að mæta Norður-Kóreu með „eldi og heift“. Þá hótuðu Kóreumenn því að gera árásir á herstöðvar Bandaríkjanna í Gvam með Hwasong-12 eldflaugum.
Sjá einnig: Segist tilbúinn til að mæta Norður-Kóreu með „heift“
Yfirlýst markmið Norður-Kóreu er að þróa langdrægar eldflaugar sem geta borið kjarnorkuvopn til Bandaríkjanna. Það fæli í sér minnst átta þúsund kílómetra ferðalag. Auk þess þyrfti ríkið að þróa kjarnorkuvopn sem eru í senn kröftug og smá, svo hægt sé að koma þeim fyrir í eldflaugum. Þá þyrftu sprengjurnar að vera verulega harðgerðar til þess að þola hitann, titringinn og álagið sem fylgir því að fljúga aftur inn í gufuhvolfið.
Þó nokkur ár eru síðan ráðamenn í Norður-Kóreu sögðust fyrst hafa tekist að þróa slík kjarnorkuvopn, en það hefur ekki verið staðfest. Árið 2017 var eldflaugum af gerðinni Hwasong-14 og Hwasong-15 skotið á loft frá Norður-Kóreu en þær gætu mögulega dregið til meginlands Bandaríkjanna.
Reuters fréttaveitan hefur eftir bandarískum embættismanni að þar í landi sé óttast að Kóreumenn séu að undirbúa nýjar tilraunir með kjarnorkuvopn og langdrægar eldflaugar. Embættismaðurinn sagði blaðamönnum í gær að gripið yrði til aðgerða.
Norður-Kórea hefur um árabil verið beitt umfangsmiklum refsiaðgerðum og viðskiptaþvingunum vegna áðurnefndra vopnatilrauna, sem eru í trássi við ályktanir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.