Hann sagðist gera sér grein fyrir því að NATO væri máttugra en Rússland þegar kæmi að hefðbundnum hernaði en Rússlandi væri eitt stærsta kjarnorkuveldið. Þá sagði Pútín, samkvæmt frétt RIA fréttaveitunnar, að ef Úkraína myndi reyna að ná Krímskaga aftur myndi öll Evrópa dragast inn í stríðið á augabragði.
Þetta sagði Pútín eftir fund með Emmanuel Macron, forseta Frakklands. Báðir lýstu þeir fundinum sem jákvæðum og Pútín sagði tillögur Macrons raunsæjar og hægt væri að nota þær til frekari viðræðna, samkvæmt frétt DW.
Rússland gerði innrás í Úkraínu árið 2014 og innlimaði Krímskaga af ríkinu. Þá hafa aðskilnaðarsinnar í austurhluta landsins, sem studdir eru af Rússlandi, lagt undir sig svæði.
Nú hafa Rússar sent gífurlegan fjölda hermanna að landamærum Úkraínu og krefjast þess að ríkinu verði meinaður aðgangur að Atlantshafsbandalaginu um alla tíð. Þá hefur ríkisstjórn Pútíns einnig krafist þess að ríkjum Austur-Evrópu verði vísað úr bandalaginu en báðum kröfunum hefur verið hafnað.
Pútín sagðist þó ekki þeirrar skoðunar að viðræðum væri lokið.

Á meðan Pútín og Macron funduðu í Moskvu, funduðu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, og Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, í Hvíta húsinu í Washington D.C. og var sama málefni til umræðu þar. Ráðamenn í Bandaríkjunum hafa lýst yfir sífellt meiri áhyggjum vegna mögulegrar innrásar Rússa í Úkraínu.
Samhliða því hefur Biden unnið að því að fylkja bandamönnum Bandaríkjanna í Evrópu um harðar refsiaðgerðir gegn Rússlandi komi til innrásar. NATO mun ekki styðja Úkraínu með beinum hætti en hafa verið að senda vopn til ríkisins.
Eftir fund Bidens og Scholz sagði forsetinn að ef til innrásar kæmi myndu Þjóðverjar ekki taka Nord Stream 2 gasleiðsluna í notkun. Það er ný gasleiðsla frá Rússlandi til Þýskalands en ríki Evrópu reiða sig að miklu leyti á gassendingar frá Rússlandi til orkuframleiðslu og húshitunar.
„Það er nauðsynlegt fyrir Rússa að skilja að mun meira gæti gerst en þeir hafa gert sér grein fyrir,“ sagði Scholz um mögulegar refsiaðgerðir, samkvæmt AP fréttaveitunni.
Ummæli sem vöktu athygli
Ummæli Pútíns um Minsk-sáttmálann sem gerður var milli ríkisstjórnar Úkraínu og aðskilnaðarsinnanna að ekkert annað væri í boði en að virða hann, hafa vakið mikla umræðu. Pútín sagði að hvort sem Úkraínumönnum líkaði við hann eða ekki, þyrftu þeir að sætta sig við hann.
Margir hafa vakið athygli á því að Pútín virtist hafa vitnað í gamalt rússneskt pönk-lag sem fjallar um náriðlun. Eins og blaðamaður Guardian bendir á í tístinu hér að neðan er það þó ekki ljóst og er tiltækið sagt hafa verið lengi í notkun.
Putin to Ukraine on the Minsk agreement: "Whether you like it or not, bear with it my beauty." Apparently used with schoolkids, also can have worse connotations... and a tie-in to a 90s punk song about necrophilia. For more, see the replies https://t.co/4ZhJfdFBrh
— Andrew Roth (@Andrew__Roth) February 7, 2022