Þá verður sömuleiðis fjallað um skotárásina í Grafarholti en lögregla réðist í gríðarlegar aðgerðir í nótt við að hafa uppi á skotárásarmanninum. Lögregla lítur málið alvarlegum augum, og ekki síst í ljósi þess að þetta er í annað sinn á innan við ári sem manneskja verður fyrir skotárás hér á landi.
Einnig tökum við stöðuna prófkjörum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor, en þær hefjast með flokksvali Samfylkingarinnar í Reykjavík og Hafnarfirði um helgina.
Leiklist leikur stórt hlutverk í leikskólanum Laufskála þar sem börnin stíga reglulega á svið. Um er að ræða sérstakt verkefni sem vakið hefur athygli.
Þetta og margt fleira á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan hálf sjö.