Sjálfstæðismenn voru með fyrsta prófkjörið i Mosfellsbæ síðast liðin laugardag. En svona lítur prófkjörsdagatalið út fyrir febrúarmánuð annars vegar og mars hins vegar þar sem Samfylkingin, Píratar, Sjálfstæðisflokkurinn, Vinstri græn, Viðreisn og Framsóknarflokkurinn bjóða flokksfélögum að velja fólk á lista sína í nokkrum stærstu sveitarfélögum landsins.

Í sveitarstjórnarkosningunum í maí verður kosið um 23 fulltrúa til setu í borgarstjórn Reykjavíkur. Í meirihlutanum í dag sitja sjö fulltrúar Samfylkingarinnar, tveir frá Pírötum, tveir frá Viðreisn og og Vinstri græn eru með einn fulltrúa. Í minnihlutanum sitja síðan átta fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, einn frá Flokki fólksins, Miðflokknum og Sósíalistaflokknum.

Um helgina hefst törnin fyrir alvöru með flokksvali Samfylkingarinnar í Hafnarfirði á laugardag og í Reykjavík á laugardag og sunnudag.

Ingibjörg Stefánsdóttir fulltrúi í kjörstjórn Samfylkingarinnar segir rafræna kosningu hefjast klukkan átta að morgni laugardags.
„Og það verður kosning fram til klukkan þrjú á sunnudeginum.“
Hvenær reiknið þið með að úrslit liggi fyrir?
„Fljótlega upp úr því,“ segir Ingibjörg.
Enginn býður sig fram gegn Degi B. Eggertssyni í fyrsta sætið og Heiðu Björgu Hilmisdóttur í annað sætið í Reykjavík. Sextán eru hins vegar í boði í sex efstu sæti listans í borginni.

„Kjósendur mega velja fjóra til sex frambjóðendur. Það eru miklu fleiri að bjóða sig fram. Þetta er ákveðið lúxúsvandamál,“ segir Ingibjörg.
Í Hafnarfirði lýkur flokksvalinu klukkan 18:00 á laugardag og úrslit ættu að liggja fyrir þá um kvöldið. Þar raða kjósendur í átta efstu sætin þar sem tólf frambjóðendur eru um hituna. Gamla kempan Guðmundur Árni Stefánsson sækist þar eftir fyrsta sætinu ásamt Árna Rúnari Þorvaldssyni.