Robbie Fowler sótti um gamla starfið hans Milosar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. febrúar 2022 10:01 Robbie Fowler áritar Liverpool treyju sem nafni hans á bakinu. Getty/Andrew Powell Liverpool goðsögnin Robbie Fowler sótti um þjálfarastarf í sænska fótboltanum í vetur en þessu slær sænska Sportbladet upp í frétt á miðlum sínum.
Fowler er einn af þeim sem vildu fá að taka við sænska úrvalsdeildarliðinu Hammarby. Íþróttastjóri Hammarby vill ekki staðfesta nein nöfn en Sportbladet segist hafa sterkar heimildir fyrir því að þessi fyrrum markavél í enska boltanum hafi sótt um starfið. AVSLÖJAR: Fowler var sugen på jobbet som huvudtränare i Hammarby nobbadeshttps://t.co/83ZfkRQuZf— Sportbladet (@sportbladet) February 14, 2022 Hammarby var að leita að nýjum þjálfara eftir að hafa rekið Íslandsvininn Milos Milojevic. Milos var rekinn eftir að hafa farið án leyfis í viðræður við norska félagið Rosenborg. Norðmennirnir vildu ekki Milos á endanum en hann var ekki lengi án starfs og er nú þjálfari Malmö FF. Hammarby réði á endanum Martí Cifuentes, sem var þjálfari AaB í Danmörk en hann er 39 ára gamall Spánverji. Robbie Fowler hefur verið að þjálfa fótboltanum hinum megin á hnettinum eða í Tælandi, Ástralíu og nú síðast á Indlandi. Hann vildi greinilega komast til Evrópu. Fowler var mikill markaskorari á tíma sínum með Liverpool og er sjöundi markahæsti ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi. Hann er líka markahæsti leikmaður Liverpool í ensku úrvalsdeildinni með 128 mörk í 266 leikjum og skoraði alls 183 mörk fyrir félagið. Fowler spilaði einnig fyrir Leeds United, Manchester City, Cardiff og Blackburn áður en hann endaði feril sinn í Ástralíu og Tælandi.
Enski boltinn Mest lesið Sprengdu upp hús foreldra rússneskrar íþróttastjörnu Sport Brynjar studdur af KSÍ en Willum af Sundsambandinu Sport „Stálum öllu steini léttara frá helstu stöðunum í London“ Íslenski boltinn Fótboltamaður lést í upphitun Fótbolti Uppgjörið og viðtöl: Fram - Haukar 18-30 | Gestirnir tóku forsytuna með risasigri Handbolti Bein útsending: Norðurlandamótið í hermiakstri Sport Sekt upp á sextíu milljónir króna fyrir að ná ekki vigt Sport „Hann er tekinn út úr leiknum“ Körfubolti Grættu dómarann og hættu við blaðamannafund Fótbolti Chelsea upp í fjórða sætið Enski boltinn Fleiri fréttir Jón Daði skoraði og Victor vann Íslendingaslaginn Newcastle felldi Ipswich og komst upp í þriðja sætið Chelsea upp í fjórða sætið Evra vill berjast við Suárez í búrinu: Hann má meira að segja bíta mig „Vilja allir spila fyrir Man United“ Kidd kominn í eigendahóp Everton Leicester kveður „geitina“ sem félagið sótti í utandeildina Snýr aftur eftir lungnabólguna Liverpool getur tryggt sér titilinn á sunnudaginn Fór út í dulargervi eftir að Barton byrjaði að bauna á hana Jafnt á Emirates og Liverpool þarf að bíða Arteta ætlar ekki að hvíla Saka fyrir Meistaradeildina Sagan segir að Arsenal vinni Meistaradeildina Rekstur Chelsea: Eins og að tapa sextíu milljónum á dag í tíu ár Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Klásúlan virkjuð en enn óvíst hvort Chelsea kaupi Sancho Dramatík í Manchester United vill fá Cunha Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Reyna að lesa eitthvað út úr fagni Trents Alexander-Arnold Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Biður stuðningsfólk afsökunar á skítnum „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham Alfons með sitt fyrsta mark fyrir Birmingham Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur Sjá meira