Skoðun

Jarðtenging óskast

Hildur Björnsdóttir skrifar

Í fannfergi undanfarinna daga hefur mikið mætt á starfsfólki borgarinnar vegna snjómoksturs. Mikið rask hefur orðið á hversdagslegu lífi fólks í borginni og aðstæður fyrir gangandi reynst nær ómögulegar – þvert á fyrirheit um gönguvæna borg. Starfsfólk hefur hins vegar staðið sig með miklum sóma undir miklu álagi, en í einhverjum tilvikum setið undir gagnrýni fyrir afraksturinn. Það er þó ekki við starfsfólk að sakast þegar borgaryfirvöld bjóða þeim óviðunandi starfsaðstæður.

Í þessu samhengi vakti athygli yfirlýsing frá starfsfólki vetrarþjónustu sem kvartar undan skilningsleysi borgarstjóra á þeirra starfi. Keypt hafi verið tæki og tól sem hæfa illa til verksins, og starfsfólki því gert ómögulegt að sinna starfi sínu með fullnægjandi hætti.

Skrúfjárn og hamar

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem borgaryfirvöld falla í þann pytt að fljúga með himinskautum þegar jarðtengingar er þörf. Þú réttir ekki skrúfjárn, þeim sem þurfa hamar. Listinn er raunar nokkuð langur. Rekstrarhæfi Sorpu var stefnt í hættu vegna framúrkeyrslu við byggingu gas- og jarðgerðarstöðvar sem stenst ekki gæðakröfur. Fordæmalaust lóðaklúður varð til þess að Malbikunarstöðin Höfði var eyðilögð sem söluvara. Sögu Braggans við Nauthólsvík ættu svo flestir að þekkja.

Raunir snjómokstursfólks í Reykjavík eru því miður ekki einsdæmi, heldur stef í langþreyttri laglínu. Borgarstjóri skreytir sig með stórum hugmyndum, en gætir ekki að útfærslunni. Þess vegna er grunnþjónusta í borginni í molum.

Uppbygging gas- og jarðgerðarstöðvar var göfugt markmið en starfsemin þjónar illa tilgangi sínum í verksmiðju sem stenst ekki nútíma gæðakröfur. Þá má sannarlega nýta verðmætt byggingaland á Höfða undir annað en þungaiðnað, en útfærslan þarf að styðjast við lágmarksfyrirhyggju, og þess þarf að gæta að verðmæti fari ekki í súginn. Sama gildir um veitingarekstur og skemmtanahald í borginni. Það er ekki hlutverk borgarinnar að sjá einstaka rekstraraðilum fyrir niðurgreiddu húsnæði. Aðkoma borgarinnar á að vera almenns eðlis - ryðja þarf hindrunum úr vegi og reka borgina þannig að álögur á rekstraraðila verði sem lægstar.

Hæfi til verksins

Borgarstjóri hefur verið við völd með örstuttum hléum í tuttugu ár. Borgin er nú á því stigi í stóru sem smáu að vera rekin á sjálfsstýringu að því er virðist af gömlum vana. Starfsfólki borgarinnar hefur fjölgað um 20% á kjörtímabilinu. Skuldir hafa hækkað um þriðjung.

Útgjaldaaukningin hefur ekki skilað sér í bættri þjónustu. Það sýna ítrekaðar mælingar. Snjómoksturinn er birtingarmynd þess. Hér skortir jarðtengingu. Göturnar verða ekki ruddar með tækjum sem ekki hæfa til verksins, ekki frekar en grunnþjónustan kemur til með að batna með borgarstjóra sem ekki er hæfur til verksins.

Við þurfum breytingar – við þurfum Reykjavík sem virkar.

Höfundur er borgarfulltrúi og vill leiða lista Sjálfstæðisflokks fyrir borgarstjórnarkosningar í vor.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×