Skoðun

Þjóðar­leik­vanga á nýja staði

Friðjón R. Friðjónsson skrifar

Eitt verkefna borgarstjórnar á næsta kjörtímabili er að leiða til lykta málefni þjóðaleikvanga landsins, það er að segja ef það er nokkur áhugi meðal borgarfulltrúa á að þjóðarleikvangar landsins séu í höfuðborginni. Fyrir liggur að áhugi er á að hafa þjóðarleikvang í knattspyrnu í Kópavogi.

En borgarstjóri hefur ýtt málinu á undan sér og á sama tíma komist upp með að vanrækja íþróttaaðstöðu Þróttar og Ármanns, sem eru núna með gríðarlega umfangsmikið barnastarf sem mun aukast enn meira með ákvörðun um að Vogabyggð verði á félagssvæði Þróttar.

Landslið karla og kvenna hafa verið stolt þjóðarinnar en Reykjavíkurborg hefur verið þröskuldur í því að byggja upp nýja leikvanga. Raunveruleg hætta er á því að landslið Íslands verði að leika heimaleiki sína erlendis á næstu árum.

Ríkið hefur samþykkt að vera með í fjármögnun leikvanganna. Aftur á móti strandar þetta allt á því að borgin taki ákvörðun um hver aðkoma hennar eigi að vera. Svo dæmið sé tekið af Laugardalsvelli þá leggur Reykjavíkurborg núna um 50 milljónir árlega til reksturs vallarins en fær tæplega helming þess tilbaka í fasteignagjöld. Nýr völlur mun bera umtalsvert hærri fasteignagjöld. Sem dæmi má nefna að fasteignagjöld Hörpunnar eru ríflega 300 milljónir árlega. Ef framlag borgarinnar til nýs þjóðarleikvangs væri það sama og áætluð fasteignagjöld bygginganna væri hluti borgarinnar í fjármögnun leystur. Það væri furða ef borgin ætlaði sér að hagnast beint af nýjum leikvöngum.

Það má draga umtalsvert úr byggingarkostnaði við gerð nýs knattspyrnuleikvangs ef hann er byggður á nýjum stað. Það verður dýr og erfið framkvæmd að vinna ofan í núverandi velli. Meiri skynsemi væri að byggja á auðu svæði þar sem fer saman nálægð við góðar samgöngur, bílastæði skammt undan og almenningssamgöngu þjóna. Slíkt svæði þarf ekki að vera umfangsmikið og nokkur slík má finna í borginni, fleiri utan borgarmarka.

Að auki verða til tækifæri við að tengja við nýja leikvanga annars konar atvinnustarfsemi sem ekki er hægt að koma við í Laugardal. Hótel, veitingastaðir eða skrifstofur samfest við leikvanga gera slíka byggingu og rekstur hagkvæmari auk annarra viðburða sem hægt væri að halda, sem allir vekja athygli á Íslandi og færa okkur beinar og óbeinar tekjur.

Ef við viljum að þjóðarleikvangar landsins séu í höfuðborginni, þá þarf borgarstjórn að spýta í lófa og sýna að henni er alvara. Annars byrjum við von bráðar að leika landsleiki fyrst erlendis og síðan í Kópavogi eða Keflavík.

Það yrðu glötuð eftirmæli fyrir hvaða borgarstjórn sem er að vera sú sem hrakti landsliðin úr Reykjavík.

Höfundur er framkvæmdastjóri, varaþingmaður og frambjóðandi í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×