Það vekur sérstaka athygli landlæknisembættisins að þeim hefur fjölgað mikið sem fá ávísað hinum alræmda ópíóíða oxýkódóni eða blöndu oxýkódóns-blöndu undanfarin ár. Á árinu 2021 leystu yfir 4.200 manns út verkjalyfin, en einungis um 1.800, eða ríflega 40 prósent, gerðu það bara einu sinni. Meirihluti leysti oxy út tvisvar sinnum eða oftar.
Hinn nýi ópíóíðafaraldur á Íslandi
Fram kom í umfjöllun Kompás í janúar að Ísland væri í miðjum ópíóíðafaraldri, eftir samdrátt í lyfjaávísunum síðasta áratug. Lyfjatengd andlát hafa aldrei verið fleiri á sex mánaða tímabili en þau voru fyrri helming árs 2021. Þau voru þá 24. Embætti Landlæknis hefur enn ekki birt tölur um andlát á seinni hluta síðasta árs.
Fyrsti Kompásþáttur ársins fjallaði um notkun ópíóíða á Íslandi. Þar kom fram að lyfjatengd andlát eru algengust á Íslandi af öllum Norðurlöndunum og að þúsundir Íslendinga noti oxy, margfalt fleiri en fyrir áratug.
Ávísanaglaðir læknar?
Embætti landlæknis viðrar þá spurningu í Talnabrunni hvort oxyinu sé í einhverjum tilvikum ávísað áður en fólk finnur fyrir verkjum, eins og til dæmis eftir aðgerð. Lyfin séu svo jafnvel leyst út án þess að vera nokkurn tíma tekin.
Þegar fleiri eru komnir með sterk verkjalyf heim með sér eykst hættan á því að afgangslyf komist í hendur á þriðja aðila.
- Embætti landlæknis
20 prósent kvenna notuðu ópíóíða í fyrra
Fram kemur í Talnabrunninum að eftir nokkurra ára samdrátt í notkun ópíóíða má sjá lítilsháttar fjölgun einstaklinga sem leystu út lyfjaávísun á ópíóíða árið 2021, þegar ríflega 61 þúsund einstaklingar leystu út að minnsta kosti eina ávísun á ópíóíða, samanborið við ríflega 57 þúsund árið áður. Konur eru í meirihluta notenda. Um 20 prósent kvenna á Íslandi leystu út ávísun á ópíóíða 2021 samanborið við um 14 prósent karla.
Auk þess að vera mjög ávanabindandi, geta of stórir skammtar ópíóíða verið lífshættulegir vegna bælandi áhrifa sem þeir hafa á þann hluta heilans sem stýrir öndun. Of stórir skammtar geta því valdið öndunarstoppi og dauða.
- Embætti landlæknis
Notkunin eykst með hækkandi aldri og samkvæmt tölum Landlæknis leystu meira en 35 prósent fólks yfir áttræðu út ópíóíða í fyrra. Aukning varð þó í öllum aldurshópum, að hinum yngsta undanskildum. Hér ber að undirstrika að þessar tölur ná ekki utan um ópíóíða sem eru seldir ólöglega. Vinsælustu ópíóíðarnir eru blanda af kódeini og parasetamóli, eins og parkódín og parkódín forte, eða um 67 prósent af öllum ópíóíðum sem hefur verið ávísað. Þá ber að taka fram að stjórnvöld ákváðu nýverið að gera parkódín aðgengilegt án lyfseðils fyrir fólk sem er smitað af Covid-19 og rauk salan upp. En þær tölur koma ekki fyrr en á næsta ári.
Fleiri nota oxy en leysa út minna
Varðandi hinn mjög svo skaðlega og áhrifaríka ópíóíða Oxycontin, eða oxýkódón, hefur þeim fjölgað sem fengu honum ávísað, en svo virðist sem hver einstaklingur hafi leyst úr minna magn miðað við árið á undan. Það er að segja, sjúklingarnir leystu ekki út öll lyfin sem þeir fengu ávísað.

Fram kemur í umræðukafla Talnabrunns að Embætti landlæknis hafi beitt sér fyrir mótvægisaðgerðum til að sporna við ofnotkun ópíóíða og til að bæta öryggi verkjalyfjameðferðar á Íslandi.
Til að notkun ópíóíða verði viðlíka því sem er meðal nágrannaþjóða okkar þarf hún að dragast saman hér á landi og á það sérstaklega við um notkun á Parkódín og/eða Parkódín forte. Því er beint til lækna að ávísa frekar vægari verkjalyfjum en ópíóíðum, en það er hægt, og ávísa alltaf minnstu pakkningu.