Tíu buðu sig fram í framkvæmdastjórnina en sjö fulltrúar náðu kjöri. Sólveig Anna Jónsdóttir, Finnbogi Sveinbjörnsson formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga og Halldóra Sveinsdóttir formaður Bárunnar stéttarfélags voru þau sem ekki náðu kjöri.
Sólveig Anna sat áður í framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins en sagði sig úr stjórninni samhliða uppsögn úr Eflingu á haustmánuðum 2021. Finnbogi og Halldóra sátu bæði í framkvæmdastjórninni en náðu ekki endurkjöri samkvæmt upplýsingum fréttastofu.
Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness var kjörinn formaður Starfsgreinasambandsins á þingi þess í á föstudaginn með tíu atkvæða mun. Sólveig Anna hafði opinberlega lýst yfir stuðningi við Vilhjálm og sagði að áherslubyltingu yrði innan Starfsgreinasambandsins næði hann kjöri.
Eftirtaldir voru kosnir í framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins:
Aðalmenn:
Aðalsteinn Árni Baldursson, Framsýn stéttarfélag
Anna Júlíusdóttir, Eining-Iðja
Eyþór Þ. Árnason, Verkalýðsfélagið Hlíf
Guðrún Elín Pálsdóttir, Verkalýðsfélag Suðurlands
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, AFL Starfsgreinafélag
Ragnar Ólason, Efling stéttarfélag
Þórarinn Sverrisson, Aldan stéttarfélag
Varamenn í framkvæmdarstjórn eru eftirfarandi:
1. Varamaður: Guðný Óskarsdóttir, Drífandi stéttarfélag
2. Varamaður: Vignir Maríasson, Verkalýðsfélag Snæfellinga
3. Varamaður: Hörður Guðbrandsson, Verkalýðsfélag Grindavíkur
4. Varamaður: Ástþór Jón Ragnheiðarson, Verkalýðsfélag Suðurlands
5. Varamaður: Fabio Ronti, Efling stéttarfélag