Þeir veltu því þá fyrir sér hvaða kort í CS:GO yrði fyrir valinu ef þeir þyrftu að velja eitt þeirra til að eyða sumarfríinu sínu í.
„Inferno-mappið. Kjúklingar, ítölsk tónlist og allt bara yndislegt,“ sagði Kristján í upphafi innslagsins þegar ljóst var að viðureign Þórs og Kórdrengja myndi fara þar fram.
„Bara allt upp á 10,5. Alveg 100 prósent,“ svaraði Tómas.
Strákarnir ákváðu síðan að reyna að þylja upp allt sem má finna á kortinu. Vespa, skellinaðra, hjól og líkkistur voru meðal þeirra hluta sem strákarnir mundu eftir.
„Inferno hefur bara allt,“ sagði Kristján. „Ef ég væri að kaupa mér sumarfrí í eitthvað map í CS:GO. Það er góður klúbbur í Overpass, en ég hugsa að það yrði Inferno.“
Tómas tók sér aðeins lengri tíma í að velta þessu mjög svo mikilvæga máli fyrir sér, en var svo að lokum sammála kollega sínum.
Þessa skemmtilegu umræðu þeirra félaga má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.