Ómar dró vagninn í dramatískum sigri Magdeburg Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 5. apríl 2022 20:35 Ómar Ingi Magnússon var frábær í kvöld. Bruno de Carvalho/SOPA Images/LightRocket via Getty Images Selfyssingurinn Ómar Ingi Magnússon var allt í öllu er Magdeburg tryggði sér sæti í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar í handbolta í kvöld. Liðið vann dramatískan eins marks sigur á Sporting, 36-35, en Ómar kom með beinum hætti að 15 mörkum heimamanna.
Fyrri leikur liðanna endaði með jafntefli í Portúgal, 29-29, og því var allt undir í kvöld. Heimamenn í Magdeburg voru skrefinu framar í fyrri hálfleik og leiddu með tveimur mörkum þegar gengið var til búningsherbergja. Staðan 21-19. Gestirnir frá Portúgal spiluðu fast og gerðu liðsmönnum Magdeburg erfitt fyrir. Til að gefa smá mynd af því hversu fast þeir spiluðu þá þurftu þeir tíu sinnum að setjast á bekkinn með tveggja mínútna brottvísun, og þá fór rauða spjaldið einnig þrisvar á loft. Síðari hálfleikurinn var gríðarlega jafn og gestirnir náðu yfirhöndinni þegar um stundarfjórðungur var til leiksloka. Þeir náðu tveggja marka forskoti í stöðunni 32-34, en heimamenn snéru taflinu við á lokasekúndunum og unnu eins marks sigur, 36-35. Ómar Ingi Magnússon átti frábæran leik í liði heimamanna. Hann skoraði tíu mörk og gaf þar að auki fimm stoðsendingar á liðsfélaga sína. Gísli Þorgeir Kristjánsson kom einnig við sögu í liði Magdeburg og skoraði tvö mörk. Magdeburg var ekki eina Íslendingaliðið sem tryggði sér sæti í átta liða úrslitum í kvöld, en Kadetten og GOG gerðu slíkt hið sama fyrr í kvöld.
Handbolti Mest lesið Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Enski boltinn Segir Trump að hætta þessu bulli varðandi Kanada Fótbolti Víkingar skipta um gír Íslenski boltinn Gera grín að Jürgen Klopp Fótbolti Fékk egg í andlitið á blaðamannafundi: „Skítuga eggjakakan þín“ Sport Apaummæli Mourinho kostuðu hann mikið Fótbolti „Getum gengið stoltar frá borði“ Handbolti Dagskráin í dag: Rashford, Bónus deild karla og margt fleira Sport Sjóðandi heitur Curry gaf mömmu sinni treyjuna eftir leik Körfubolti Tók hana fjögur ár að skrifa ævisögu Anníe Sport Fleiri fréttir „Settum í sjötta gír í seinni hálfleik“ „Getum gengið stoltar frá borði“ Uppgjörið: Grótta - Haukar 21-31 | Haukar munu etja keppi við Fram í úrslitum Aron og Bjarki Már gerðu sitt í París Magnaður Sigvaldi sökkti Magdeburg „Viðurkenni að maður fékk fiðring í magann” Elliði Snær og Andri Már í sigurliðum Uppgjörið: Fram - Valur 22-20 | Fram í bikarúrslit Fyrrverandi þingmaður tekur við formennsku hjá FH Hetja heimsmeistaranna handleggsbrotnaði „Litla höggið í sjálfstraustið“ Hægt að hlusta frítt á Þóri Hergeirs segja frá leyndarmálunum Lyftu bikarnum fyrir framan þær en hafa síðan ekki unnið Val í þúsund daga Missti tönnina, tók hana upp og fór í bikarúrslit Uppgjörið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu Orri með fjögur gegn strákunum hans Guðmundar „Veit ekki hvar on-takkinn er“ „Þetta bara svíngekk“ Sjötta tap Hauks og félaga í röð Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 34-29 | Stjarnan flaug í úrslit Hafa ekki tapað undanúrslitaleik í nítján ár Ætla ekki að bíða aftur í 24 ár Sveinn spilar í fimmta landinu Róbert hættir með Gróttu eftir tímabilið Dagur skilaði sínu fyrir Montpellier sem er komið áfram Elliði Snær frábær í góðum sigri Karabatic-ballið alveg búið Haukar fara til Bosníu Íslendingaliðið með stórsigur og á góðu róli Haukur hlýddi Snorra strax og er á leið til Löwen Sjá meira