Skipar leikmönnum að vera í klukkutíma fjarlægð frá æfingasvæðinu en vill sjálfur ekki flytja Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. apríl 2022 14:31 Ekki hefur gengið sem skyldi síðan Steve Bruce tók við enska B-deildarliðinu West Brom. getty/Malcolm Couzens Steve Bruce, knattspyrnustjóri West Brom, krefst þess að leikmenn liðsins eigi heima í klukkutíma fjarlægð frá æfingasvæði félagsins. Hann er aftur á móti ekki tilbúinn að flytja sjálfur.
Bruce tók við West Brom í byrjun febrúar. Þá var liðið í 6. sæti ensku B-deildarinnar. Illa hefur gengið að undanförnu og West Brom er núna í 13. sæti deildarinnar. Eitt af því sem Bruce telur að geti bætt árangur West Brom er að leikmenn liðsins eigi heima skammt frá æfingasvæðinu. „Ég sagði þeim að þeir yrðu allir að vera í klukkutíma fjarlægð frá æfingasvæðinu. Við erum ekki á nógu góðum stað í deildinni. Ég vil ráðast í endurskipulagningu á hópnum fyrir næsta tímabil. Og leikmennirnir sem eru hér, og koma hingað, verða að skuldbinda sig,“ sagði Bruce. „Við erum með of marga leikmenn sem þurfa að ferðast og það getur ekki verið gott fyrir þig sem atvinnumann. Ég tjáði þeim það og þeir voru jákvæðir gagnvart því. Ég held þeir skilji mig.“ Bruce á sjálfur heima í Cheshire sem er í eins og hálfs klukkutíma fjarlægð frá West Bromwich. Hann hefur hins vegar ekki hug á að flytja. „Fólk mun spyrja mig hvort ég muni flytja. En það vinnur ekki með okkur. Við erum venjulega reknir,“ sagði Bruce.
Enski boltinn Mest lesið Kennir kynlífi með kærastanum um að hún féll á lyfjaprófi Sport Ólympíufari dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir barnaníð Sport Sektin hans Messi er leyndarmál Fótbolti Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Enski boltinn Neitar að tjá sig um ósættið við Kristófer: „Á milli mín og hans“ Körfubolti Komnir með þrettán stiga forskot Enski boltinn Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Fótbolti „Okkur langar virkilega að vinna titla hérna“ Sport Elísabet byrjar á tveimur töpum Fótbolti Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Fótbolti Fleiri fréttir Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Chelsea skrapaði botninn með Southampton Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ „Spiluðum mjög vel í dag“ „Við þurfum annan titil“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah „Eigum skilið að finna til“ Asensio hetjan í endurkomu Villa Sjá meira