Man City skoraði sjö Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 30. apríl 2022 12:31 Khadija Shaw skoraði fjögur í dag. Lynne Cameron/Getty Images Manchester City gjörsigraði Brighton & Hove Albion í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeild kvenna í fótbolta, lokatölur 7-2 heimaliðinu í vil.
Segja má að Man City hafi gert út um leikinn á fyrsta stundarfjórðungi leiksins. Khadija Shaw braut ísinn á 3. mínútu og bætti öðru marki sínu við á 12. mínútu. Örskömmu síðar var staðan orðin 3-0 þökk sé marki Caroline Weir. Gestirnir voru þó ekki alveg á þeim buxunum að gefast upp og minnkuðu muninn í 3-2 fyrir lok fyrri hálfleiks. Inessa Kaagman með fyrra markið og Julia Zigiotti Olme með það seinna. Á meðan heimaliðið kom tvíeflt út í síðari hálfleikinn virtist sem gestirnir hefðu sofnað og gleymt að enn ætti eftir að spila 45 mínútur. Shaw fullkomnaði þrennu sína eftir tæplega klukkutíma og bætti við fjórða marki sínu skömmu síðar. Alex Greenwood – sem hefur spilað með Man United, Liverpool og Everton ásamt Man City – kom heimaliðinu í 6-2 áður en Lauren Hemp skoraði sjöunda markið þegar enn voru 20 mínútur til leiksloka. Fleiri urðu mörkin hins vegar ekki og leiknum lauk með 7-2 sigri Man City. Sigurinn kemur City upp í 3. sæti deildarinnar með 41 stig, tveimur stigum meira en Man United.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið „Hann er tekinn út úr leiknum“ Körfubolti Grættu dómarann og hættu við blaðamannafund Fótbolti Ráðgátan leyst: Ólafur Kristjánsson hafði rétt fyrir sér Íslenski boltinn „Ég get ekki lýst þessu, ég á engin orð“ Körfubolti Valur einum sigri frá úrslitum Handbolti Dagskráin í dag: Íslenskur körfubolti, allskonar fótbolti og margt fleira Sport Uppgjörið: Álftanes - Tindastóll 94-82 | Einvígið jafnt eftir mikinn hasar Körfubolti Rúnar staðfestir að Fram þurfti annan markvörð Íslenski boltinn „Vilja allir spila fyrir Man United“ Enski boltinn Fyrsta deildartap PSG Fótbolti Fleiri fréttir „Vilja allir spila fyrir Man United“ Kidd kominn í eigendahóp Everton Leicester kveður „geitina“ sem félagið sótti í utandeildina Snýr aftur eftir lungnabólguna Liverpool getur tryggt sér titilinn á sunnudaginn Fór út í dulargervi eftir að Barton byrjaði að bauna á hana Jafnt á Emirates og Liverpool þarf að bíða Arteta ætlar ekki að hvíla Saka fyrir Meistaradeildina Sagan segir að Arsenal vinni Meistaradeildina Rekstur Chelsea: Eins og að tapa sextíu milljónum á dag í tíu ár Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Klásúlan virkjuð en enn óvíst hvort Chelsea kaupi Sancho Dramatík í Manchester United vill fá Cunha Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Reyna að lesa eitthvað út úr fagni Trents Alexander-Arnold Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Biður stuðningsfólk afsökunar á skítnum „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham Alfons með sitt fyrsta mark fyrir Birmingham Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Úlfarnir unnu United aftur Sjá meira