Þingholtsstræti 35 fyrsta uppgerða íbúðarhúsið sem hlýtur Svansvottun Húsasmiðjan 4. maí 2022 08:51 F.V. Magnús Magnússon, markaðsstjóri Húsasmiðjunnar, Elva Rakel Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Svansins á Íslandi, Gísli Sigmunddson hjá Breytingu og Jón Þórir Þorvaldsson, umhverfisverkfræðingur hjá Húsasmiðjunni. Þingholtsstræti 35 var í síðustu viku fyrsta uppgerða húsið til að hljóta Svansvottun. Þegar Gísli Sigurðsson húsgagna- og húsasmiður, keypti húsið í september 2020 var það í afar slæmu ástandi. Gísli setti sér strax það markmið að við endurgerð hússins skyldi horft til þess að fá Svansvottun á allt ferlið en hann rekur byggingarþjónustufyrirtækið Breytingu og voru heimatökin því hæg. Endurgerð á húsinu var unnin í samvinnu við Húsasmiðjuna sem útvegaði allt byggingarefni og tryggði að það stæðist kröfur Svansvottunar. Þingholtsstræti 35 fyrir endurgerð. Húsið var byggt að grunni til árið 1911 og því mikið breytt árið 1954 og var miðað við það byggingarlag við endurgerðina. Elva Rakel Jónsdóttir Sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun: ,,Íslendingar hafa tekið tækifærinu til að umhverfisvotta endurbætur á húsnæði opnum örmum. Þingholtsstræti 35 er fyrsta íbúðarhúsnæðið á Norðurlöndunum öllum sem fær Svansvottun fyrir endurbætur. Með því framsýna skrefi lögðu aðstandendur verkefnisins sitt að mörkum við að sýna fram að á hvernig hægt er að hafa umhverfismál að leiðarljósi við endurbætur og standast kröfur Svansins.“ Meginmarkmið með Svansvottun er að draga úr umhverfisáhrifum bygginga, sporna við hnattrænni hlýnun og vernda heilsu þeirra sem koma að verkinu á framkvæmdartíma og þeirra sem nota bygginguna eftir að hún er tekin í notkun. Svansvottaðar endurbætur skila heilnæmari íverustað og vernda umhverfið. Endurbæturnar gengu mjög hratt og vel fyrir sig þrátt flókna enduruppbyggingu þurfti töluverðar endurbætur að innan og utan til að færa það til nútímans. „Þetta er í fyrsta sinn sem svona verkefni er unnið hér á Íslandi og því sannkallað frumkvöðlastarf hér á ferð,“ segir Magnús Magnússon, markaðsstjóri Húsasmiðjunnar. „Það hefur verið mjög lærdómsríkt fyrir okkur í Húsasmiðjunni að vinna þetta verkefni með Gísla og hans fólki hjá Breytingu sem sá um alla framkvæmd. Ferlið hefur aukið þekkingu okkar starfsfólks á svona verkefnum ásamt því að við höfum nú aukið enn frekar við vöruval hjá okkur í umhverfisvænum lausnum. Til að auðvelda fólki að byrja höfum við gefið út starfrænan vörubækling með mikið af þeim vörum sem við bjóðu upp á sem henta í Svansvottuð byggingaverkefni. Við sjáum að viðskiptavinir okkar kunna vel að meta vörulistann. Við erum sífellt að bæta við vöruvalið og í hverjum mánuði bætast við nýjar vörur og nýjar lausnir hjá okkur. Við bjóðum einnig upp á ráðgjöf hjá umhverfisverkfræðingi, Jóni Þóri Þorvaldssyni, sem starfar hjá okkur á Fagsölusviði og sérhæfir sig í umhverfisvottuðum byggingalausnum.“ Þess má svo geta að mjög auðvelt er að sjá umhverfisvænar eða „Grænar vörur“ í vefverslun Húsasmiðjunnar og í Húsasmiðjuappinu. Þar kemur fram hvaða vottun viðkomandi vara hefur ásamt tækniblöðum og vottunum þar sem það á við. Endurbæturnar gengu mjög hratt og vel fyrir sig þrátt flókna enduruppbyggingu þurfti töluverðar endurbætur að innan og utan til að færa það til nútímans. Húsið var byggt að grunni til árið 1911 og því mikið breytt árið 1954 og var miðað við það byggingarlag við endurgerðina. Hér er hægt að nálgast vörubækling Húsasmiðjunnar fyrir Svansvottuð hús: Gísli hélt uppi Facebooksíðu þar sem hægt var að fylgjast með framkvæmd verkefnisins. Byggingariðnaður Hús og heimili Umhverfismál Mest lesið Vonar að Icelandair sjái sóma sinn í að bæta fólki tjónið Neytendur Situr uppi með „fýlusvipinn“ þrátt fyrir að hafa borgað fyrir aðgerð Neytendur Svo fölsk að móðir hennar leitaði ráða hjá kórstjóranum Atvinnulíf Hætta við breytta tollflokkun pítsaostsins Viðskipti innlent Tryggja sér lóðir fyrir höfuðstöðvar á rúman milljarð Viðskipti innlent Heimar kaupa umdeild hús á rúma sex milljarða Viðskipti innlent „Óumflýjanlegt“ kílómetragjald kynnt í vikunni Neytendur Samkeppniseftirlitið segir samrunann auka samkeppni Viðskipti innlent Gervigreindin: Píparinn öruggur en læknirinn ekki? Atvinnulíf Fleiri hlutastörf: „Viltu vera memm?“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Vetrarferð á verðlaunuðum rafbíl Iðnaðarhurðir sem henta íslenskum aðstæðum Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Slippfélagið eflir þjónustu með gervigreind BYKO með ánægðustu viðskiptavinina áttunda árið í röð Greiðsluáskorun Rafbílaeigendur hljóta að hafa stáltaugar Bóndi í Borgarfirði keyrði Skoda-bíl yfir milljón kílómetra Góð kjör á afmælissýningu Toyota Sjá meira
Hér er hægt að nálgast vörubækling Húsasmiðjunnar fyrir Svansvottuð hús: Gísli hélt uppi Facebooksíðu þar sem hægt var að fylgjast með framkvæmd verkefnisins.
Byggingariðnaður Hús og heimili Umhverfismál Mest lesið Vonar að Icelandair sjái sóma sinn í að bæta fólki tjónið Neytendur Situr uppi með „fýlusvipinn“ þrátt fyrir að hafa borgað fyrir aðgerð Neytendur Svo fölsk að móðir hennar leitaði ráða hjá kórstjóranum Atvinnulíf Hætta við breytta tollflokkun pítsaostsins Viðskipti innlent Tryggja sér lóðir fyrir höfuðstöðvar á rúman milljarð Viðskipti innlent Heimar kaupa umdeild hús á rúma sex milljarða Viðskipti innlent „Óumflýjanlegt“ kílómetragjald kynnt í vikunni Neytendur Samkeppniseftirlitið segir samrunann auka samkeppni Viðskipti innlent Gervigreindin: Píparinn öruggur en læknirinn ekki? Atvinnulíf Fleiri hlutastörf: „Viltu vera memm?“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Vetrarferð á verðlaunuðum rafbíl Iðnaðarhurðir sem henta íslenskum aðstæðum Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Slippfélagið eflir þjónustu með gervigreind BYKO með ánægðustu viðskiptavinina áttunda árið í röð Greiðsluáskorun Rafbílaeigendur hljóta að hafa stáltaugar Bóndi í Borgarfirði keyrði Skoda-bíl yfir milljón kílómetra Góð kjör á afmælissýningu Toyota Sjá meira