„Þetta er bara heilög stund“ Elísabet Hanna skrifar 10. maí 2022 13:30 Bergur Ebbi er sífellt að semja uppistandsefni. Aðsend. Uppistandarinn Bergur Ebbi er kominn aftur á svið með uppistandið sitt í Tjarnarbíó þar sem hann hefur sýnt fyrir fullu húsi síðan í mars. Við ræddum við Berg Ebba um tilurð sýningarinnar, en nú eru aðeins örfáar sýningar eftir fyrir sumarfrí.
Hvernig myndir þú lýsa þínum húmor?Húmor er oftast samofinn persónuleika fólks. Minn persónuleiki er þversagnarkenndur, eins og flestra. Ég tel mig vera vísindalega þenkjandi og er alltaf að leita að svörum við flóknum spurningum, en á sama tíma er ég óþolinmóður og tilbúinn að fórna öllu fyrir augnablikið. Minn húmor byggist soldið á þessu held ég. „Ég fer af stað í ferðalag í leit að miklum sannindum, en svo springur allt í loft upp á leiðinni.“ Hvað kom til að þú ákvaðst að hafa uppistand núna?Ég held hreinlega að ég hafi verið uppfullur af hugmyndum sem fá best notið sín í uppistandi. Stundum er maður fullur af hugmyndum til að skrifa bók, stundum til að gera sjónvarpsþætti en núna er það uppistandið sem kallar. Bergur EbbiKristófer Helgason Hvernig nýttir þú síðustu ár til þess að búa til efni?Ég er sífellt að semja uppistandsefni. Ég punkta hjá mér fréttir og hluti sem ég á erfitt með að melta. Lykillinn að góðu uppistandsefni er einmitt það sem situr í manni. Ef maður heyrir sögu eða sér eitthvað sem maður veit ekki hvað manni á að finnast um, þá er líklegt að það geti verið fyndið fyrir fólk að heyra mann kljást við það. Við hverju eiga áhorfendur að búast?Fólk má bara búast við kvöldstund fullri af pælingum frá mér. Mín hugðarefni eru frekar almenn, en samt má segja að ég hafi ákveðin sérsvið. Ég er mjög upptekinn af því hvernig samfélög okkar eru að breytast útaf tækni, hvernig við ráðum varla við hraðann í samfélaginu og hversu klikkuð baráttan um athygli okkar er orðin. Allt í kringum mig sé ég fullorðið fólk vera að breytast í gelgjur, stressað yfir hvernig það er klætt, hvað það eigi að borða, hvað það eigi að horfa á, hvert það eigi að ferðast. Ég er ekkert undanskilinn þessu fómói. En auðvitað langar mann stundum að setjast niður og ná smá fókus og þótt ótrúlegt sé þá er uppistand ágætis leið til að gera það. Gott að gleyma sér í góðu gríni.Aðsend. Á uppistandi nær maður stundum að láta fólk detta alveg inn í pælingarnar. Það er enginn í símanum, enginn að hugsa um að vera annars staðar. Þetta er bara heilög stund. En að öllu þessu sögðu er þó óhætt að ætla að þeir áhorfendur sem ég hef fengið eru bara flestir að leita að góðri skemmtun held ég, og auðvitað snýst þetta fyrst og síðast um það. Hvert er þitt uppáhalds sjónvarpsefni?Það er sambland af ýmsu en ég er mest í lágmenningunni. Ég horfi á bílavideo á youtube og svo eitthvað sagnfræðirusl og íþróttamistakasyrpur. Á streymisveitunum hef ég verið að horfa á raunveruleikasjónvarpsþætti um innanhúshönnun og ég hef horft á hvern einasta þátt af Heimsókn með Sindra Sindra, en þeir eru að sjálfsögðu hámenning! „En svo blundar líka í mér sextugur menningarviti því ég horfi á allt sem Egill Helgason gerir og dýrka til dæmis þætti þar sem hann gengur um í kirkjugörðum og talar um dáið fólk.“ Er skrítið að stíga aftur á svið eftir pásuna sem samfélagið hefur verið í?Það tók nokkur skipti að venjast því, bæði fyrir mig og líka áhorfendur. En það er mikið fjör og í raun alveg dásamleg tilfinning.
Grín og gaman Uppistand Tengdar fréttir Bergur Ebbi fór yfir stöðuna eins og honum einum er lagið Frímínútur á föstudegi er nýr dagskrárliður sem birtist á Facebook-síðu IÐAN fræðsluseturs alla föstudaga. 6. apríl 2020 11:29 Bergur Ebbi fer á kostum sem Reynir sem kennir fólki að vera í sóttkví „Fyrir næstum tíu árum síðan lék ég í sketsaþáttunum Mið-Ísland. Þessi þættir eru nú að mestu leyti gleymdir en við og við hef ég tekið eftir því að ungir krakkar eru að herma eftir karakter úr þáttunum sem heitir Reynir.“ 8. apríl 2020 14:29 Bein útsending: Bergur Ebbi les úr Skjáskoti Borgarleikhúsið heldur áfram að bjóða upp á beint streymi í samkomubanninu. Í dag klukkan 12 les Bergur Ebbi úr bók sinni Skjáskoti. 15. apríl 2020 11:30 Mest lesið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Lífið „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Ísrael sendir kvörtun til EBU Lífið Fleiri fréttir Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Sjá meira
Bergur Ebbi fór yfir stöðuna eins og honum einum er lagið Frímínútur á föstudegi er nýr dagskrárliður sem birtist á Facebook-síðu IÐAN fræðsluseturs alla föstudaga. 6. apríl 2020 11:29
Bergur Ebbi fer á kostum sem Reynir sem kennir fólki að vera í sóttkví „Fyrir næstum tíu árum síðan lék ég í sketsaþáttunum Mið-Ísland. Þessi þættir eru nú að mestu leyti gleymdir en við og við hef ég tekið eftir því að ungir krakkar eru að herma eftir karakter úr þáttunum sem heitir Reynir.“ 8. apríl 2020 14:29
Bein útsending: Bergur Ebbi les úr Skjáskoti Borgarleikhúsið heldur áfram að bjóða upp á beint streymi í samkomubanninu. Í dag klukkan 12 les Bergur Ebbi úr bók sinni Skjáskoti. 15. apríl 2020 11:30