Skoðun

Frum­kvæði gegn stríði

Ástþór Magnússon skrifar

Samstarf friðarsamtaka á Norðurlöndum hafa sent ríkisstjórnum og þingmönnum landanna bréf. Antikrigs-Initiativet (Frumkvæði gegn stríði) leggur eindregið til að Norðurlöndin umsvifalaust stöðu sína og endurnýi sjálfbærni sína sem er falin í samstarfi Norðurlandanna og varnarbandalagi eins og það var endurmyndað árið 2009.

Þátttaka okkar í stríðsrekstri víða um heim hefur stuðlað að eyðileggingu og verri lífskjörum og lífsgrundvöll víðsvegar um heiminn og leitt til mikils flóttamannavanda. Varnarbandalag okkar gefur kost á að leiðrétta og lagfæra eftir þær árásir sem við höfum þannig stuðlað að og stutt.

Nýtum tækifærið núna – það pólitíska tækifæri sem nú myndast – áður en Svíþjóð og Finnland ljúka umsóknarferli um sinni um inngöngu í NATO. Noregur, Danmörk og Ísland geta rétt út höndina og með sögulegum hætti veitt endurnýjaðri orku inn í varnarbandalag Norðurlandanna. Tekið skrefið og skapað nýjan grundvöll fyrir sameiginlegu varnarbandalagi án NATO.

NATO er hættulegt bandalag að vera í. Að stækka NATO mun minnka öryggi Evrópu. Sameiginlegt norrænt varnarbandalag getur ráðið úrslitum í að viðhalda friði á Norðurslóðum og draga úr spennu. Við þurfum á viðspyrnu að halda gegn yfirstandandi hervæðingu norðursins að halda. Okkar hagur er friðsæld.

Útfrá öryggispólitík er samnorrænt samstarf um varnir góður kostur. Við viljum forðast aukna spennu og erlendar herstöðvar á okkar landssvæði til að gera okkur auðveldara fyrir

að halda stjórn bæði í raunheimum og stafrænt (m.t.t. t.d. eftirlits Bandaríkjanna með dönskum nettengingum). Við viljum tryggja að okkur sé unnt að móta eigin pólitísku stefnu. Það er styrkur í bandalagi okkar í því ljósi að Norðurlöndin sameinuð mynda tíunda til tólfta stærsta efnahagssvæði í heimi.

Við skorum á stjórnvöld á Íslandi að hugsa með skapandi hætti og taka til aðgerða og snúa við þeirri hræðslu og forsendusköpun sem yfirstandandi stríð í Úkraínu hefur leitt af sér.

Noregur, Danmörk, Ísland, Svíþjóð og Finnland leggja metnað í að standa fyrir lýðræði og siðfræði inn í framtíðina. Antikrigs-Initiativet hvetur eindregið til þess að ígrunda stöðuna vandlega og taka sjálfstæðar og óháðar ákvarðanir um framhaldið. Okkar sameiginlegu hagsmunir eru að skapa varandi frið. Norrænt varnarbandalag mun skipta sköpum.

Okkar kynslóð getur gert upp skuldina vegna mannréttindabrota sem Noregur og Danmörk hafa myndað með framlögum sínum til og afstöðu innan NATO.

Antikrigs-Initiativet skorar á Norðurlöndin að nýta tímann, hugsa alvarlega um þessa tillögu og endurheimta dómgreind sína sem hefur orðið hræðslunni að bráð. Ykkar er ábyrgðin, ykkar er að stuðla að friði.

Friður 2000 á Íslandi hefur sent bréfið til ríkisstjórnar og alþingismanna á Íslandi.

Höfundur er stofnandi Friðar 2000.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×