Skoðun

Hafn­firðingar eru á­nægðir með bæinn sinn

Rósa Guðbjartsdóttir skrifar

Undanfarin átta ár hafa verið farsæl fyrir Hafnfirðinga. Undir ábyrgri og styrkri stjórn okkar Sjálfstæðismanna hefur fjárhagsstaða bæjarins batnað til muna og ekki verið sterkari í áratugi. Við höfum greitt niður lán og lækkað skuldahlutföll bæjarins jafnt og þétt. Margt er þó enn óunnið í þessum málum og lítið má út af bregða svo að hlutirnir snúist ekki aftur til hins verra. Þess vegna er svo mikilvægt að allir sem einn leggist á þær árar að tryggja glæsilega útkomu Sjálfstæðismanna í kosningunum á morgun.

Miklar framkvæmdir eru nú víðs vegar um bæinn. Ný íbúðahverfi rísa, atvinnuhúsnæði þýtur upp og fyrirhugaðar eru ýmsar framkvæmdir sem styrkja munu inniviði bæjarins. Má þar nefna knatthús á Ásvöllum og reiðhöll fyrir hestamannafélagið Sörla. Eftir tiltekt í fjármálum bæjarins og góða sölu lóða hefur bæjarfélagið bolmagn til að ljúka þessum framkvæmdum án þess að fara í lántökur.

Traustur fjárhagur er undirstaða allrar þjónustu í bæjarfélaginu. Fyrirbyggjandi aðgerðir á borð við virkt og stöðugt viðhald á eignum bæjarins hefur dregið verulega úr ófyrirséðum útgjöldum vegna tjóna. Þá heitum við Sjálfstæðismenn því að halda álögum sem fyrr í lágmarki og gæta þess að lækka jafnan álagningarstuðul fasteignagjalds til móts við hækkun fasteignaverðs. Við berum virðingu fyrir skattfé borgaranna og gætum þess að rekstur bæjarins sé skilvirkur.

Á næsta kjörtímabili höfum við frekara svigrúm til að efla enn frekar þjónustuna við íbúana. Við getum áfram hlúð vel að félagslega kerfinu og þeim sem minna mega sín. Við getum þjónað fjölbreyttum þörfum bæjarbúa með sóma og lagt okkar lóð á vogarskálarnar til að menningin og íþróttalífið blómstri sem aldrei fyrr í bænum. Við ætlum okkur stóra hluti.

Samkvæmt árlegri þjónustukönnun Gallup, sem nýlega var kynnt, voru 90% Hafnfirðinga ánægð með bæinn sinn. Við Sjálfstæðismenn viljum halda áfram að stýra bæjarfélaginu með ábyrgum og farsælum hætti. Til þess að svo megi verða hvet ég þig til að láta ekki þitt eftir liggja til að tryggja flokknum glæsilega kosningu á morgun. Og muna að hvert atkvæði skiptir máli.

Með góðri sumarkveðju,

Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×