„Ítalía er eitt okkar uppáhalds land og þetta var bara ákveðið tækifæri fyrir fjölskylduna að fara heimsækja uppáhalds landið okkar og fagna með Íslendingum góðu gengi“, segir María aðspurð um af hverju þau ákváðu að skella sér.
„Það er gaman að sjá Eurovision“, segir Ragnar og bætir við: „Mér hefur aldrei áður dottið í hug að fara og sjá það, en hef að sjálfsögðu horft á Eurovision eins og allir Íslendingar á hverju ári. Svo reyndist það vera ótrúlega skemmtilegt og mikil stemning í kringum það. Það er frábært að vera á Ítalíu, frábært að vera í Tórínó, Juventus völlurinn er rétt hjá, góður matur og gott veður, það er ekki hægt að kvarta yfir þessu.“
En hvað fannst fjölskyldunni skemmtilegast við Eurovision upplifunina?
„Stemningin meðal gesta“, segir María og Ragnar bætir við: „Svo kom á óvart hvað þetta var auðvelt, þægilegt og fjölskylduvænt.“ Þau segja upplifunina í alla staði hafa verið virkilega góða og skemmtilega og gaman að fá að sjá þetta með eigin augum.

Og haldið þið að þið farið aftur?
„Já við erum nú þegar farin að ræða það. Það kemur í ljós hvert við förum um helgina, eftir að tilkynnt hefur verið um hvaða land vinnur,“ segir María og hlær.
Að lokum spurði blaðamaður hvaða land þau telji að muni bera sigur úr býtum í kvöld og þurftu þau ekki að hugsa sig tvisvar um þegar þau svöruðu brosandi: „Ísland!“