Allt frá því fyrir hrun þegar byrjað var að byggja Hörpu hefur miðborgin verið undirlögð byggingaframkvæmdum með tilheyrandi brölti, umferð stórra vöru- og steypubíla og þrengingum á umferð.

Senn líður að því að þessum miklum byggingarframkvæmdum í miðborginni ljúki. Stór áfangi að því eru nýbyggingar við Bryggjugötu. Finnur Bogi Hannesson þróunarstjóri Hafnartorgs hjá Reginn segir að innan örfárra vikna verði opnað þar torg með veitingastöðum og verslunum sem verði aðgengilegar frá mörgum stöðum.

Við erum hér í miðjunni á þessu nýja verslunar- og veitingatorgi og þið ætlið að opna eftir nokkrar vikur. Þið eruð bjartsýnir?
„Já, en samt bara raunhæfir myndi ég telja,“ segir Finnur Bogi en fréttamanni þykir mikið eiga eftir að gera á svæðinu.
Hann segir flesta veitingastaðina verða eitthvað á undan verslununum en stefnt sé að því að öllu verði lokið fyrir mánaðamót. Hægt verði að ganga inn á torgið frá mörgum stöðum.
„Þetta er eiginlega torg inni í húsi. Við erum með mjög gott aðgengi beint úr bílakjallara. Rúllustigi beint upp úr bílakjallara með ellefu hundruð stæði. Svo erum við með aðgengi beint frá Geirsgötu, Bryggjugötu og beint frá gestamóttökunni á Edition hótelinu,“ segir Finnur Bogi.

Meðal verslana í nýja hlutanum verði fyrsta North Face útivistarverslunin á Íslandi og stærsta verslun 66 gráða norður. Með Hafnartogi beggja megin Geirsgötu sé að verða til nýtt borgarhverfi þar sem menningin, verslun, veitingar og þjónusta sé allt á einum stað.

„Með því að hafa fjölbreytileika, að aðilar geti unnið vel saman á svona svæði, er lykillinn teljum við. Og við erum að ná því núna,“ segir Finnur Bogi. Um þrjátíu verslanir og veitingastaðir verði á Hafnartorgi til samans.

Til að allt þetta gangi upp dugar ekkert minna en her iðnaðarmanna sem í dag var við störf í öllum hornum.

Þú ert að segja mér að í júlí geti ég labbað á þetta iðnaðarsvæði sem lítur út eins og það er í dag og hér verði allt sprell lifandi?
„Já, það ætla ég svo sannarlega að vona. Alla vega verða einstakar verslanir opnaðar hérna eftir nokkrar vikur og allt svæðið eflaust í júlí,“ segir Finnur Bogi Hannesson.