Þetta kemur fram á vef Borgarlínunnar þar sem segir að aðundanförnu hafi tímaáætlanir framkvæmda vegna fyrstu lotu Borgarlínu verið til endurskoðunar hjá Verkefnastofu Borgarlínunnar.
Þegar frumdrög að fyrstu lotu Borgarlínunnar, frá Ártúnshöfða að Hamraborg, voru kynntar, stóðu vonir til að framkvæmdir myndu hefjast í fyrsta lagi 2023 og fyrsti vagninn gæti farið þessa leið seinni hluta ársins 2025.
Fyrsta lota Borgarlínunnar mun ná frá Ártúnshöfða og niður í miðbæ. Þaðan fer hún um miðborgina, yfir í Vatnsmýrina, yfir Fossvog út á Kársnes og þaðan upp í Hamraborg.

Á vef Borgarlínunnar segir að uppfærð áætlanir miði við að framkvæmdalok fyrstu lotu verði tvískipt. Leggurinn Hamraborg-Miðbær verði tilbúinn árið 2026 og leggurinn Ártúnshöfði-Miðbær verði tilbúinn 2027.
Verkefnið er tæknilega flókið og þarf að stilla ýmsa þætti þess saman með öðrum verkefnum Samgöngusáttmálans sem fram undan eru eða eru þegar hafin. Þá hafa COVID-19 faraldurinn og stríðið í Úkraínu haft áhrif á virðiskeðjur, segir á vef Borgarlínunar.
Þar kemur einnig fram að í haust hefjist fyrstu framkvæmdir vegna Borgarlínunnar, þegar byrjað verður á landfyllingu fyrir nýja Fossvogsbrú. Gert er ráð fyrir að hún verði tilbúin í lok árs 2024.

Á vef Borgarlínunnar segir jafnframt að undirbúningur við aðrar lotur Borgarlínunnar sé að hefjast. Sú vinna muni standa yfir fram á næsta ár.
Fyrsta lota Borgarlínunnar er sú lengsta, eða um 14,5 km. Aðrar lotur eru styttri og þær munu vinnast samhliða lotu eitt.
Áfram er þó gert ráð fyrir að vagnar Borgarlínunnar muni hefja akstur á leiðinni Hamraborg - HÍ á árinu 2025.