Lokatölur í leiknum urðu 3-1 Þór í vil en Harley Willard sem lagði upp seinna mark Alexanders Más skoraði þriðja mark Þórs. Björn Axel Guðjónsson klóraði svo í bakkann fyrir gestina úr Vesturbænum.
Norðanmenn eru með 11 stig í níunda sæti deildarinnar eftir þennan sigur. KV er hins vegar í næstneðsta sæti með sjö stig.
Alexander Már gekk til liðs við Þór frá Fram um mánaðamótin síðastliðin. Hann hefur nú skorað þrjú mörk í fyrstu tveimur leikjum sínum fyrir Þórsara.
Vestri gerði svo góða ferð á Selfoss þar sem liðið náði í þrjú stig með því að leggja heimamenn að velli með einu marki gegn engu.
Það var Ongun Yaldir sem skoraði sigurmark Vestramanna í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Yaldir var svo áminntur með gulu spjaldi í annað skipti og þar af leiðandi vísað af velli með rauðu spjaldi í upphafi síðari hálfleiks.
Selfoss náði ekki að nýta sér liðsmuninn og sigur Vestra staðreynd. Chris Jastrzembski fór sömu leið og Yaldir í uppbótartíma seinni hálfleiks.
Vestri hefur nú 15 stig í fimmta sæti en liðið er tveimur stigum á eftir Selfossi sem var á toppnum fyrir umferðina.
Upplýsingar um úrslit, markaskorara og atburði í leikjunum eru fengnar frá fotbolta.net.