Stór hluti líkami Péturs brann og var hann með mikla innvortis áverka eftir að hafa fengið í sig straum úr tengivirki. Hann var fluttur með sjúkrabíl til Ísafjarðar og síðar til Reykjavíkur með sjúkraflugi.
Gert var að sárum Péturs með stoðefnum frá fyrirtækinu Kerecis. Kerecis vinnur efnin úr þorskroði og hefur Pétur náð umtalsverðum bata þökk sé efnanna.
Í myndbandi sem Kerecis gerði um Pétur og ótrúlegan bata hans segist hann ekki muna eftir slysinu og í rauninni ekki eftir mánuðunum á undan.
„Eina sem ég veit er hvað vinnufélagi minn sagði mér. Sem var þarna þegar slysið átti sér stað,“ segir Pétur.
Það var ekki fyrr en við komuna til Reykjavíkur sem læknarnir áttuðu sig á alvarleika ástands Péturs. Læknarnir á bráðamóttökunni sögðu eiginkonu Péturs að hann ætti mögulega ekki eftir að lifa af.
Þegar Pétur var ekki lengur í lífshættu var ákveðið að nota efni Kerecis á húð hans. En efnin voru staðsett á Ísafirði og Pétur í Reykjavík og engin flug milli bæjarfélaganna þennan dag. Því keyrði starfsmaður Kerecis með efnin alla leið suður.
Endurhæfing Péturs gengur vel og vill hann byggja upp styrk til að geta farið aftur á gönguskíði en fyrir slysið var hann mikill skíðakappi.
„Ég er svo heppinn að dóttir mín býr hér í Reykjavík og sonur hennar, barnabarn mitt, er góður félagi í gegnum endurhæfinguna,“ segir Pétur.