Baltasar Kormákur og Sunneva Ása Weisshappel voru ástfangin á rauða dreglinum.Getty/Nina Westervelt
Baltasar Kormákur og listakonan Sunneva Ása Weisshappel voru glæsileg á rauða dreglinum við heimsfrumsýningu nýjustu myndar Baltasars sem ber heitið Beast. Idris Elba lét sig ekki vanta á svæðið en hann fer með aðalhlutverk myndarinnar.
Myndin var frumsýnd í New York á Museum of Modern Art og virtist mikil gleði ríkja meðal aðstandenda myndarinnar. Myndin sem Baltasar leikstýrir fjallar um föður sem fer með dætur sínar til Suður-Afríku þar sem hann kynntist móður þeirra. Þegar þangað er komið breytist draumaferðin í martröð þar sem illgjarnt ljón reynir að ráða daga þeirra.
Hér að neðan má sjá fleiri myndir frá frumsýningunni:
Baltasar Kormákur, Iyana Halley, Leah Jeffries, Will Packer, Idris Elba og Sharlto Copley á heimsfrumsýningu Beast.Getty/Nina WesterveltMikil gleði var meðal þeirra sem komu að myndinni.Getty/Nina WesterveltÁst og gleði hjá parinu.Getty/Nina WesterveltIdris Elba og Sabrina Dhowre voru líka ástfangin á rauða dreglinum.Getty/Nina WesterveltSvo mikil ást hjá Floyd Jeffrie, Leah Jeffries og Lee Jeffries.Getty/Nina Westervelt
Nýjasta mynd Baltasars Kormáks, Beast, er væntanleg í kvikmyndahús í ágúst. Myndin var unnin í Suður-Afríku síðasta sumar og segir sögu manns sem þarf að kljást við illvígt ljón í hefndarhug á sama tíma og hann reynir að rækta tengslin við dætur sínar á nýjan leik.
Kvikmyndaleikstjórinn Baltasar Kormákur selur einbýlishús sitt á Smáragötu í miðborginni. Fasteignamat eignarinnar er 152.500.000 krónur og er óskað eftir tilboði.
Listakonan Sunneva Ása Weisshappel birti á Instagram fallegar myndir af sér með Baltasar Kormáki í hestaferð. Hún er í London í augnablikinu og virðist sakna hestaferðanna.