Javier Hernandez býðst til þess að spila frítt fyrir Man Utd Atli Arason skrifar 10. ágúst 2022 22:00 Javier Hernandez lék með Manchester United frá 2010 til 2015. NordicPhotos/Getty Javier Hernandez, fyrrum framherji Manchester United og núverandi leikmaður LA Galaxy hefur boðist til þess að koma aftur til félagsins og spila fyrir það án þess að þiggja greiðslur fyrir.
Þessi 34 ára gamli Mexíkói lék með United í fimm ár og vann ensku úrvalsdeildina í tvígang með liðinu. Það var Sir Alex Ferguson sem fékk hann til félagsins á sínum tíma. Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, er í leit af nýjum framherja og leitar víða. Marko Arnautovic var orðaður við félagið áður en þær áætlanir urðu af engu eftir mótmæli stuðningsmanna liðsins. United þarf hins vegar að fara varlega með fjármagnið en ekkert félag í Evrópu hefur eytt meiri peningum í félagaskipti en enska liðið síðustu tíu leiktímabil. Hernandez hefur því boðist til að að rétta sínum fyrrum liðsfélögum hjálparhönd en hann segist tilbúinn að spila ókeypis fyrir United, ef félagið leitast eftir kröftum hans. „Ef United myndi hafa samband við mig þá myndi ég strax segja já og spila ókeypis,“ sagði Hernandez við fjölmiðla vestanhafs en bætti þó við að hann væri með fulla einbeitingu á því að klára tímabilið vel með LA Galaxy. Í 21 leik í bandarísku MLS deildinni á þessu ári hefur Hernandez skorað 9 mörk fyrir LA Galaxy en á sínum tíma skoraði Hernandez 59 mörk í 157 leikjum fyrir Manchester United.
Enski boltinn Fótbolti Mest lesið Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Enski boltinn Allt annað en sáttur með Frey Fótbolti Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Fótbolti Leik lokið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu Handbolti Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Enski boltinn Komnir með þrettán stiga forskot Enski boltinn Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Fótbolti Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Körfubolti Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 34-29 | Stjarnan flaug í úrslit Handbolti Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Enski boltinn Fleiri fréttir Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Chelsea skrapaði botninn með Southampton Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ „Spiluðum mjög vel í dag“ „Við þurfum annan titil“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah „Eigum skilið að finna til“ Asensio hetjan í endurkomu Villa Öruggur sigur Spurs og Wolves vann óvænt Sjá meira