Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir að á sama tímabili í fyrra hafi tap félagsins numið 1,4 milljónum dala en þá var félagið enn í startholunum með að hefja flugrekstur.
Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði hafi verið neikvæð um 14,4 milljónir Bandaríkjadala á ársfjórðungnum. Það hafi þó ekki komið forsvarsmönnum félagsins á óvart þar sem félagið hafi enn ekki náð tilætlaðri stærðarhagkvæmni á fjórðungnum ásamt sögulega háu eldsneytisverði.
Fjárhagsstaða Play sé þá áfram sterk. Handbært fé þann 30. júní síðastliðinn hafi numið 29,5 milljónum Bandaríkjadala með bundnu fé. Eiginhlutfall hafi verið 13,4 prósent og félagið hafi engar ytri vaxtaberandi skuldir.
Rekstrartekjurnar fari þá ört vaxandi en tekjur á fjórðungnum hafi numið 32,5 milljónum dala samanborið við 9,6 milljónir Bandaríkjadala á fyrsta ársfjórðungi.
Á tímabilinu flutti Play rúmlega 181 þúsund farþega og var sætanýtingin 74,8 prósent að meðaltali samkvæmt tilkynningunni. Þá segir að farþegafjöldi hafi aukist milli mánaða og sætanýting styrkst.
Félagið gerir ráð fyrir að farþegar verði um 800 þúsund á þessuári og 20 milljarða króna veltu á árinu, fyrsta heila starfsári félagsins.
Play mun kynna uppgjör sitt á opnum kynningarfundi sem hefst klukkan hálf níu í fyrramálið, 23. ágúst. Þar munu Birgir Jónsson forstjóri og Þóra Eggertsdóttir fjármálastjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Fundinum verður streymt hér.