Svo reyndist ekki vera og var tilkynningin leiðrétt skömmu síðar en tölvupóstur hafði verið sendur á „töluvert stærri hóp en hann átti að fara á,“ eins og það var orðað af skólastjóra. Margir verða því að bíða eitthvað lengur en skólastjóri Ævintýraborgar segir öll af vilja gerð og foreldrar séu flestallir jákvæðir.
„Kæru foreldrar og forráðafólk. Ótrúlega gaman að senda ykkur þennan póst.“ Svona hefst tölvupóstur frá Birnu Bjarkardóttur, skólastjóra á Ævintýraborg við Nauthólsveg, sem kveðst ætla að taka inn börnin á leikskólann í byrjun september.
Eins og greint hefur verið frá er stefnt á að opna Ævintýraborg við Nauthólsveg í september og er það eitt helsta úrræði borgarinnar sem kynnt var á blaðamannafundi í ráðhúsinu eftir kröftug mótmæli langþreytta foreldra.
„Því miður áttu þau mannlegu mistök sér stað að ég, Birna Bjarkardóttir skólastjóri á Ævintýraborg sendi út póst á töluvert stærri hóp en hann átti að fara á. […] Þó vissulega sé gott að allir foreldrar sem hafa sótt um vistun við skólann fyrir börn sín hafi fengið upplýsingar um að við séum á fullu að undirbúa og opna skólann þá átti þessi tiltekni póstur aðeins að fara á foreldra/forráðamenn þeirra barna sem nú þegar hafa fengið boð um vistun við skólann. Ég harma það að hafa valdið misskilningi.“
Þannig hljómar síðari póstur sem barst frá skólastjóranum. Mörgum foreldrum var því snarlega kippt niður á jörðina.

Stefnt að opnun í byrjun september og starfsfólk jákvætt
Birna segir í samtali við fréttastofu að mannleg mistök hafi átt sér stað. Það hafi hins vegar gengið vel að flýta fyrir innritun margra barna og þau horfi björtum augum á framhaldið.
„Við erum núna að heyra í foreldrum sem hafa fengið boð um vistun í október og nóvember. Við sjáum fram á að geta flýtt öllum þeim börnum. Núna erum við bara að klára að ráða inn fólk og þess háttar,“ segir Birna.
Nú sé lítil aðstaða á Eggertsgötu fyrir 25 börn sem verða flutt yfir á Nauthólsveg.
„Við flytjum í byrjun september. Nú er úttekt hjá heilbrigðiseftirlitinu og svo þurfum við nokkra daga til að koma okkur fyrir og á mánudaginn 12. september erum við að taka inn fyrsta holl.
Hún segir að öðru leyti öll af vilja gerð og að gott samstarf sé við marga foreldra sem séu allir jákvæðir.
„Það skiptir máli að halda uppi jákvæðum fréttum og jákvæðum ummælum ekki bara alltaf að taka það neikvæða. Við starfsfólkið tökum þetta á jákvæðninni og það gera allir foreldrar sem ég tala við,“ segir Birna að lokum.