Þrír keppendur eru saman í liði og keppa fyrir hönd þeirra íþróttafélaga sem þau styðja. Tökur á þáttunum fara fram í stúdíói Stöðvar 2 í nóvember og hefjast sýningar í janúar 2023. Stjórnendur Krakkakviss eru Berglind Alda Ástþórsdóttir og Mikael Emil Kaaber.
Það er einfalt að sækja um. Setjið saman þriggja manna lið og takið upp myndband þar sem þið segið stuttlega frá ykkur og liðinu. Í hverju liði þurfa að vera keppendur af fleiri en einu kyni.
Í myndbandinu er gott að þið kynnið ykkur með nafni, segið frá íþróttafélaginu ykkar og af hverju ykkur langar til að taka þátt í Krakkakviss. Svo viljum við endilega fá að heyra einn góðan brandara frá ykkur í lokin.
Myndbandið þarf að vera innan við mínúta að lengd. Hlaðið því svo inn hér að neðan ásamt upplýsingum um liðið. Fyrir frekari fyrirspurnir er hægt að senda tölvupóst á krakkakviss@stod2.is.
Opið er fyrir umsóknir til 10. október.
Hér er hægt að senda inn umsókn.