Stór hluti bílastæðisins á milli Skautahallarinnar og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins hefur verið girt af vegna verkefnisins. Á heimasíðu Skautahallarinnar segir að höllin verði lokuð frá 10. til 22. október.
Undanfarna daga hafa starfsmenn verið að gera og græja Skautahöllina fyrir tökur á sjónvarpsþáttaröðinni. Um er að ræða fjórðu seríu True Detective þar sem Jodie Foster, Óskarsverðlaunaleikkona með meiru, er í aðalhlutverki.

Sögusvið fjórðu seríu True Detective er Alaska. Þau atriði sem tekin verða í höllinni gerast um jólin og hefur höllin því verið skreytt líkt og hátíð ljóss og friðar sé í gangi. Þá má sjá bandaríska fána í höllinni.
Efnilegustu skautaiðkendur landsins verða frá æfingum þessa þrettán daga sem höllin er lokuð. Í pósti frá Skautafélagi Reykjavíkur til iðkenda á dögunum kom fram að erlent kvikmyndafyrirtæki hefði tekið Skautahöllina á leigu hjá Reykjavíkurborg.
„Þessa daga falla niður allar reglulegar æfingar í Skautahöllinni þar sem við höfum ekki aðgang að henni á meðan. Við vitum að þetta er ekki skemmtileg staða en vetrarleyfi í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði lenda á seinni helginni svo það lágmarkar raskið að einhverju leyti,“ segir í póstinum.

„Við stefnum á að vera með einhverja dagskrá á meðan þessari lokun stendur í formi fyrirlestra og óhefðbundinna æfinga en hún verður kynnt þegar nær dregur.“
Þá kemur fram að nokkrir SR-ingar hafi fengið aukahlutverk sem íshokkíleikmenn í True Detective.
Fyrirtækið True North kemur að tökunum hér á landi. Leifur Dagfinnsson, eigandi og framkvæmdastjóri True North, sagði í Kastljósi á dögunum að verkefnið væri svona tíu sinnum stærra en týpísk verkefni fyrirtækisins fyrir erlend kvikmyndatökulið.
Týpísku verkefnin, upp á viku til tíu daga, séu með fjárhagsáætlun upp á 500-1000 milljónir. En svona hundrað tökudaga verkefni, því fylgi erlendur peningur og gjaldmiðill upp á níu milljarða króna.
Nokkur fjöldi Íslendinga hefur flutt úr húsum sínum til að leigja leikurum og starfsfólki við tökur á þáttunum.