Þórhildur Ólafsdóttir, eiginkona Glenn og nú fyrrum leikmaður ÍBV, greindi fyrst frá tíðindunum á Facebook í dag. Þar gagnrýnir Þórhildur ÍBV fyrir framkomu félagsins gagnvart Glenn og telur að ÍBV forgangsraði karlaliðinu fram yfir og kvennalið félagsins. Þórhildur lék með kvennaliði ÍBV í sumar en hefur sagt skilið við félagið eftir tíðindi dagsins.
„Upp komu nokkur leiðindamál yfir tímabilið. Glenn ýtti því sem ógnaði hans ímynd og orðspori til hliðar með velferð liðsins í huga. Það sem ekki var mikilvægt, gat beðið og setti hann allan fókusinn á leikmennina og liðið. Þessi atvik voru samt sem áður mikill stessvaldur og höfðu ekki bara áhrif á þjálfara, heldur klefann allan,“ skrifaði Þórhildur og bætir við að Glenn hafi borist hótanir fyrir störf sín hjá ÍBV.

„Foreldrar og öðrum fannst þeir eiga rétt á að skipta sér af störfum hans og reyndu jafnvel að þvinga hans ákvörðunartöku með því að ýta á hann sjálfan sem og ráðið. Það gekk svo langt að honum bárust hótanir í facebook samskiptum við eitt foreldrið (já í meistaraflokki). Knattspyrnuráð sýndi lítinn sem engan stuðning eða vilja til að leysa þessi mál og draga línuna þar sem hún á að liggja.“
ÍBV vildi ekki leyfa Glenn að fá aðstoðarþjálfara þar sem sá einstaklingur var ekki íslenskur en á sama tíma var karlalið ÍBV með þrjá erlenda aðstoðarþjálfara. Seint og síðar meir kom inn aðstoðarþjálfari sem var einnig markmannsþjálfari karlaliðsins.
„Það var svo loksins samþykkt að markmannsþjálfari klúbbsins yrði ráðinn í stöðu aðstoðarþjálfara en á þeim tímapunkti var Glenn orðinn örvæntingarfullur að ekki myndi vera ráðið í stöðuna. Þetta þýddi jú að hann hefði ekki aðstoðarþjálfara heila æfingu og svo gerðist það oft að aðstoðarþjálfarinn var í öðrum verkefnum, til að mynda með karlaliðinu, enda ráðinn í 100% stöðu sem markmannsþjálfari. Þetta var ekki það eina en fram að sumri var enginn sjúkraþjálfari aðgengilegur fyrir liðið, Glenn þurfti einfaldlega að bjarga þessu sjálfur, teypa ökkla og fleira sem er alveg hreint ótrúlegt,“ skrifaði Þórhildur Ólafsdóttir en pistil Þórhildar í heild má lesa hér að neðan.