Framliðið hafði ekki náð að halda marki sínu hreinu síðan 25. júlí síðastliðinn eða í 90 daga. Þá vann liðið 4-0 sigur á ÍA upp á Akranesi.
Síðan Framarar fluttu sig úr Safamýrinni og yfir á nýja heimavöll sinn í Úlfarsárdalnum hafa þeir skorað mikið af mörkum en líka fengið mörg á sig.
Þessi leikur um helgina á móti FH var aðeins í annað skipti í sumar sem Framarar halda hreinu á nýja velli sínum og í fyrsta sinn síðan 11. júlí. Það voru liðnir 104 dagar síðan.
Einu heimaleikirnir sem Fram hélt hreinu í eiga það sameiginlegt að mótherjinn var FH. FH-liðið skoraði ekki heldur á vellinum í fyrri leik liðanna í deildarkeppninni.
Framliðið hefur fengið á sig 26 mörk í hinum 9 heimaleikjum sínum í Úlfarsárdalnum og tvö mörk eða fleiri í átta þeirra.
Alls hafa verið skoruð 52 mörk í ellefu heimaleikjum Fram í Úlfarsárdal eða 4,7 mörk að meðaltali í leik.
- Mörk mótherja Fram á nýja velli þeirra í Úlfarsárdalnum:
-
Haldið hreinu
- 1-0 sigur á FH í júlí
- 3-0 sigur á FH í október
-
1 mark fengið á sig
- 4-1 sigur á Leikni í ágúst
- 2 mörk fengin á sig
- 2-2 jafntefli við Stjörnuna í ágúst
- 0-2 tap fyrir Breiðabliki í ágúst
- 2-2 jafntefli við KA í ágúst
- 3-2 sigur á Leikni í október
- 3 mörk fengin á sig
- 3-3 jafntefli við ÍBV í júní
- 3-3 jafntefli við Víking í ágúst
- 1-3 tap fyrir ÍBV í október
- 8 mörk fengin á sig
- 4-8 tap á móti Keflavík í september