Tóku umhverfismálin í gegn og bjóða nú vistvæn kaffihylki Te og kaffi 27. október 2022 08:56 „Við erum eina kaffibrennslan á Íslandi sem notar umhverfisvænan orkugjafa til að rista kaffi og allar okkar kaffiumbúðir eru umhverfisvænar,“ segir Ása Ottesen markaðsstjóri hjá Te og kaffi. „Nýjasta varan okkar eru umhverfisvæn kaffihylki sem passa í nespressovélar og sambærilegar vélar. Flest slík hylki eru úr áli eða plasti en við vildum frekar bjóða upp á kost sem þyrfti ekki að endurvinna. Hylkin eru gerð úr plöntutrefjum sem brotna álíka hratt niður í náttúrunni og margur hefðbundinn lífrænn úrgangur.
Umhverfisþátturinn er afar stór í allri okkar starfsemi. Við erum eina kaffibrennslan á Íslandi sem notar umhverfisvænan orkugjafa til að rista kaffi og allar okkar kaffiumbúðir eru umhverfisvænar,“ segir Ása Ottesen markaðsstjóri hjá Te og kaffi. Fjórar tegundir af kaffihylkjum eru komnar á markað og fást í öllum matvöruverslunum Nýju kaffihylkin eru meðal annars afrakstur þróunarvinnu sem átt hefur sér stað undanfarin misseri en Te og kaffi fór í algjöra naflaskoðun varðandi umhverfismál. „Við létum mæla kolefnisspor fyrirtækisins, gerðum loftslagsbókhald og kortlögðum hvar við stæðum. Í ljós kom að orkugjafinn sem við notuðum í kaffibrennslunni var stærsti þátturinn af okkar innlenda kolefnisspori. Við skiptum því út fyrir umhverfisvænt metangas frá Sorpu sem búið er til úr lífrænum úrgangi. Við það myndast einnig skemmtileg hringrás þar sem umbúðirnar okkar eru lífrænar og sé þeim hent í brúnu tunnuna enda þær í gas- og jarðgerðarstöðinni og verða að metangasinu sem við notum til að rista kaffið. Sé þeim hinsvegar hent í almennt sorp brotna þær einnig niður en það tekur um það bil 2 ár. Til samanburðar tekur það plast um 2-500 ár að brotna niður í landfyllingu og ál 500 ár." Ráðist var í ýmsar breytingar sem þurfti til að fylgja verkefninu eftir, en meðal annars þurfti að leggja sérstakar lagnir fyrir gasið og fleira. „Við hófum síðan notkun á metangasinu á síðast ári og bein kolefnislosun fyrirtækisins er í algjöru lágmarki í dag,“ segir Ása. Allar kaffiumbúðir eru umhverfisvænar Markaðurinn kallar á kaffihylki „Við fundum fyrir því fyrir nokkrum árum að kaffimarkaðurinn er að breytast og fólk hefur fært sig í auknum mæli yfir í kaffihylki. Fólk vill geta gert sér einn og einn bolla,“ segir Ása. Það hafi hins vegar ekki komið til greina að slá af gæðakröfum né umhverfisstefnu fyrirtækisins. „Kaffið okkar hefur síðastliðin 4 ár verið valið uppáhalds kaffi Íslendinga í könnunum og margir vilja kaupa íslenska framleiðslu. Við vildum hins vegar ekki taka þátt í þessari þróun nema finna umhverfisvæn hylki. Við leituðum lengi að réttu umbúðunum. Nýju hylkin okkar fara beint í brúnu tunnuna, rétt eins og aðrar kaffiumbúðir frá okkur. Mjög mörg fyrirtæki og mötuneyti eru með umhverfisstefnu sem meðal annars þýðir að kaffið á kaffistofuna þarf að vera lífrænt og siðgæðisvottað en okkur finnst líka skipta miklu máli að umbúðirnar séu líka lífrænar. Við bjóðum upp á þetta allt. Við sláum ekkert af gæðakröfunum og ristum kaffið sem fer í hylkin dekkra en annars og náum þannig að varðveita bragðið og kraftinn,“ útskýrir Ása. Fjórar tegundir af kaffihylkjum eru komnar á markað og fást í öllum matvöruverslunum.
Matur Umhverfismál Orkumál Mest lesið Situr uppi með „fýlusvipinn“ þrátt fyrir að hafa borgað fyrir aðgerð Neytendur Vonar að Icelandair sjái sóma sinn í að bæta fólki tjónið Neytendur Svo fölsk að móðir hennar leitaði ráða hjá kórstjóranum Atvinnulíf Hætta við breytta tollflokkun pítsaostsins Viðskipti innlent Tryggja sér lóðir fyrir höfuðstöðvar á rúman milljarð Viðskipti innlent Heimar kaupa umdeild hús á rúma sex milljarða Viðskipti innlent „Óumflýjanlegt“ kílómetragjald kynnt í vikunni Neytendur Gervigreindin: Píparinn öruggur en læknirinn ekki? Atvinnulíf Samkeppniseftirlitið segir samrunann auka samkeppni Viðskipti innlent Fleiri hlutastörf: „Viltu vera memm?“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Vetrarferð á verðlaunuðum rafbíl Iðnaðarhurðir sem henta íslenskum aðstæðum Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Slippfélagið eflir þjónustu með gervigreind BYKO með ánægðustu viðskiptavinina áttunda árið í röð Greiðsluáskorun Rafbílaeigendur hljóta að hafa stáltaugar Bóndi í Borgarfirði keyrði Skoda-bíl yfir milljón kílómetra Góð kjör á afmælissýningu Toyota Sjá meira