Sara og stöllur hennar í Juventus fögnuðu 2-0 útisigri gegn Zürich í síðustu viku, í fyrstu umferð riðlakeppninnar í Meistaradeildinni.
Á sama tíma töpuðu Evrópumeistararnir í Lyon ansi óvænt, og stórt, gegn Arsenal á heiamvelli, 5-1. Linda Sembrant, sænskur liðsfélagi Söru hjá Juventus, segir að þess vegna muni leikmenn Lyon enn frekar vilja svara fyrir sig í Tórínó í dag.
„Þær eru reiðar núna. Þær eru ekki vanar því að tapa eins og þær gerðu gegn Arsenal. En við þurfum að hugsa um okkur og okkar leik. Við höfum undirbúið okkur afar vel og ætlum að gera allt til að ná fram góðum úrslitum,“ sagði Sembrant á blaðamannafundi í gær.
Juventus komst nálægt því að slá út Lyon í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð, þegar liðið vann 2-1 heimasigur en varð svo að sætta sig við 3-1 tap í Frakklandi.
„Þetta er nýr leikur og nýtt tímabil. Við höfum áður mætt Lyon en við höfum vaxið mikið. Við erum allt annað lið en þegar ég mætti hingað fyrst, við höfum bætt okkur, og við getum ekki beðið eftir því að mæta Lyon,“ sagði Sembrant og kvaðst vonast eftir alvöru meistaradeildarstemningu á Allianz-leikvanginum, þar sem leikurinn fer fram.
Leikur Juventus og Lyon hefst klukkan 16:45 og verður hægt að horfa á beina útsendingu DAZN á Vísi.